Skip to main content
12. október 2021

Ólafur Kram á fyrstu Háskólatónleikum skólaársins

Ólafur Kram á fyrstu Háskólatónleikum skólaársins - á vefsíðu Háskóla Íslands

Sigursveit Músíktilrauna í ár, Ólafur Kram, treður upp fyrir gesti og gangandi á Háskólatorgi á fyrstu Háskólatónleikunum þetta starfsárið. Þeir fara fram miðvikudaginn 13. október kl. 12.15. Tónleikunum verður jafnframt streymt.

Háskólatónleikaröðin hóf göngu sína með nýjum áherslum síðasta vetur og komu þau Mikael Máni, Dymbrá, Umbra, Kælan mikla, Sóley, Krummi og Strokkkvartettinn Siggi fram og tróðu upp við góðan orðstír. Tónleikunum hefur öllum verið streymt með glæsibrag og má nálgast upptökur hér.

Ólafur Kram sigraði í Músíktilraunum fyrr á árinu með yfirburðum og ekki að ósekju. Tónlist sveitarinnar hefur komið eins og bylmingsgustur inn í íslenskt tónlistarlíf og vissara að vara sig bara!

Sveitin, sem er skipuð þeim Iðunni Gígju Kristjánsdóttur, Guðnýju Margréti Eyjólfs, Birgittu Björg Guðmarsdóttur, Eydísi Kvaran og Sævari Andra Sigurðarsyni leikur einslags kammerpönk með vísunum í gamla tíma (Spilverkið, Slits) sem nýja (Chastity Belt t.d.). Það er ómögulegt að hrífast ekki af orkunni, einlægninni og ástríðunni sem fylgir þessari sveit. Lögin eru frumleg, leitandi og hugvitssamlega samsett og textarnir glúrnir, innihaldsríkir og bráðfyndnir. Á sviði er sveitin samhent, allir syngja og gáskinn, gleðin og þetta óbilandi hugrekki - svo það sé bara sagt - er svo gott sem yfirþyrmandi. Ekki missa af þessum opnunartónleikum!

Sveitin leikur á sviði Háskólatorgs gegnt Bóksölunni. Tónleikunum verður einnig streymt og þá verður hægt að horfa á þá síðar í upptökuformi. Hvort sem þú ert í borginni, úti á landi eða úti í heimi getur þú notið hinna fögru tóna Háskólatónleikaraðarinnar og upplifað stemninguna í skólanum.

Öll velkomin á staðinn og aðgangur gjaldfrjáls. Gildandi sóttvarnarreglum er að sjálfsögðu fylgt og eru væntanlegir gestir beðnir um að gæta að þeim í hvívetna.

Slóð á streymi frá tónleikunum

Um Háskólatónleika
Um áratugabil, og raunar í hálfa öld, hefur það verið hefð í Háskóla Íslands að standa fyrir svofelldum Háskólatónleikum. Um reglulega viðburði er að ræða, á haust- og vorönn, og fara þeir fram í byggingum háskólans. Nýr umsjónarmaður tónleikaraðarinnar og listrænn stjórnandi er dr. Arnar Eggert Thoroddsen og segist hann styðjast við slagorðið „Háskóli fyrir alla - Tónlist fyrir alla“. Fólk geti því búist við tónlist sem tilheyri alls kyns geirum, svosem poppi/rokki, djass, klassík og bara því sem álitlegt þykir hverju sinni.

Vefur Háskólatónleikaraðarinnar

Meðlimir Ólafs Kram