Skip to main content
4. febrúar 2020

Nýtt útlit á Vísindavef Háskóla Íslands

""

Þann 3. febrúar 2020 var nýtt útlit tekið í notkun á Vísindavef HÍ, meðal annars í tilefni af 20 ára afmæli vefsins. Á meðal helstu nýjunga eru að í haus Vísindavefsins eru nú eru aðgengilegar upplýsingar um sólargang og hvenær tunglið rís og sest í Reykjavík, auk upplýsinga um flóð og fjöru í Reykjavík. Þessi gögn fær Vísindavefurinn frá Almanaki Háskóla Íslands og er aðstandendum þess þakkað sérstaklega fyrir það.

Þrjú dagatöl eru nú aðgengileg á Vísindavefnum og í þeim birtast nýjar færslur alla daga ársins. Þetta eru dagatöl vísindamanna, íslenskra vísindamanna og dagatal hugmynda, uppfinninga og uppgötvana. Einnig er nú hægt að nálgast ýmis tölfræðigögn um Vísindavefinn, meðal annars um gestafjölda síðustu 12 mánaða, um orðafjölda í svörum, um mest notuðu efnisorðin og um skiptingu svara eftir flokkum, svo nokkur dæmi séu nefnd. Þessi gögn uppfærast jafnóðum.

Nýja útlitið gerir vefinn enn betri og læsilegri í farsímum og snjalltækjum en áður. Leturgerðin Inter er nú notuð á Vísindavefnum og yfirlit yfir spurningar er einkennt með litum, þeim sömu og Háskóli Íslands notar til að greina á milli fræðasviða. Þannig er til dæmis hægt að sjá fljótt hvort tiltekið svar tilheyrir hugvísindum eða náttúruvísindum, svo dæmi sé nefnt. Einnig má nefna að nýjar höfundasíður hafa verið teknar í notkun en á þeim er hægt að skoða á einfaldan hátt öll svör eftir tiltekinn höfund.

Aðalhönnuður nýja útlitsins er Egill Harðar en um viðbótarhönnun og alla forritun sá Andri Sigurðsson.

visindavefur