Skip to main content
12. desember 2019

Nýgengi krabbalíkisæxla í lungum þrefaldast á síðustu áratugum

Krabbalíkisæxlum í lungum (e. pulmonary carcinoid tumors) fylgja almennt góðar horfur en nýgengi slíkra æxla hefur þrefaldast á síðustu áratugum. Þetta sýnir ný rannsókn íslenskra vísindamanna sem birtist nýverið í vísindatímaritinu General Thoracic and Cardiovascular Surgery. Greinin er samstarfsverkefni hjarta- og lungnaskurðdeildar Landspítala og Læknadeildar Háskóla Íslands. 

Krabbalíkisæxli eru sjaldgæf tegund æxla sem eiga uppruna sinn í taugainnkirtlakerfi og geta greinst víða í líkamanum, oftast í botnlanga en líka í lungum. Í lungum eru þau oftast staðbundin en þar sem þau geta dreift sér í eitla og til annarra líffæra eru þau flokkuð með lungnakrabbameinum. Krabbalíkisæxli í lungum eru algengari hjá konum en körlum og hafa veikari tengingu við reykingar en lungnakrabbamein almennt. Þá er þetta algengasta tegund lungnaæxla sem greinist í börnum og unglingum en meðalaldur við greiningu er um 60 ár í stað 70 ára í tilviki annarra lungnakrabbameina.

Rannsóknin tók til 96 sjúklinga sem greindust  með krabbalíkisæxli í lungum á Íslandi á árunum 1955-2015. Tölfræðilíkön voru notuð til að meta þróun nýrra tilfella (nýgengi) og afdrif sjúklinganna, sérstaklega lífshorfur og útbreiðslu sjúkdómins. Þetta er í fyrsta skipti sem slík rannsókn er gerð á jafn löngu tímabili hjá heilli þjóð. 

Frá tímabilinu 1955-1984 til tímabilsins 1985-2015 fjölgaði nýgreindum tilfellum um rúmlega helming sem samsvarar tæplega 30% aukningu að meðaltali á hverjum áratug rannsóknarinnar. Niðurstöðurnar eru í samræmi við erlendar rannsóknir. Skýringin á þessari miklu aukningu er hins vegar ekki þekkt og má ekki rekja eingöngu til bættrar myndgreiningartækni.

Rúmlega 85% sjúklinga voru með sjúkdóm bundinn við lungað og gengust 91% þeirra undir lungnaskurðaðgerð þar sem æxlið var fjarlægt, en fimm árum frá aðgerð voru 90% þeirra á lífi sem teljast mjög góðar lífshorfur. 

Fyrsti höfundur greinarinnar er Ástríður Pétursdóttir, læknir á Landspítala, en leiðbeinandi hennar er Tómas Guðbjartsson, prófessor og yfirlæknir, sem jafnframt stýrði rannsókninni. 

Greinina má nálgast á hlekknum https://link.springer.com/article/10.1007%2Fs11748-019-01261-w

Frá skurðaðgerð þar sem brjóstholssjá er notuð.