Skip to main content
17. maí 2019

Ný bók og málþing um transbarnið

Í tilefni af útkomu bókarinnar Transbarnið: Handbók fyrir foreldra og fagfólk verður efnt til málþings og útgáfuhófs í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins föstudaginn 17. maí, á alþjóðadegi gegn fordómum í garð hinsegin fólks, kl. 15-17. Háskólaútgáfan gefur bókina út í samvinnu við Félag grunnskólakennara. 

Bókin leiðir fjölskyldur og fagfólk áleiðis inn í ferðalagið sem fylgir því að eiga og ala upp trans barn eða barn með ódæmigerða kyntjáningu. Tekist er á við spurningar eins og hvað kynvitund er, hvernig er að koma út, hvað kynleiðrétting er og ekki síst hvernig hægt er að bregðast við þessu öllu saman. Bókin er sú fyrsta sinnar tegundar sem birtist á íslensku. Trausti Steinsson þýddi en rýnihópur á vegum námsbrautar í kynjafræði við Háskóla Íslands staðfærði og lagaði að íslenskum aðstæðum. 

Dagskrá málþings:
• Þorgerður Jennýjardóttir Einarsdóttir, prófessor í kynjafræði, opnar málþingið
• Svandís Anna Sigurðardóttir kynjafræðingur og Sigríður Birna Valsdóttir, ráðgjafi hjá Samtökunum 78, kynna vinnu faghóps við staðfæringu bókar
• Trausti Steinsson, grunnskólakennari og þýðandi, les valda kafla
• Fulltrúi Trans Ísland ávarpar málþingið
• Fulltrúi Transvina ávarpar málþingið

Útgáfuhóf:
• Móttaka og léttar veitingar

Til að panta eintak af bókinni, vinsamlega sendið pöntun á styrmir@hi.is. Fram þarf að koma nafn og kennitala greiðanda. Eintakið verður afhent á málþinginu eða sent til viðkomandi og krafa stofnuð í heimabanka greiðanda. Bókin verður einnig til sölu á kynningarverðir á málþinginu.
 

Kápa bókarinnar Transbarnið