Skip to main content
29. maí 2018

Norræn ráðstefna í fjölskyldurétti

Þátttakendur ráðstefnunnar við inngang í Lögberg

Dagana 24.-26. maí 2018 fór fram ráðstefnan Det XX Nordiske familieretsseminaret. Ráðstefnuna hélt Rannsóknastofnun Ármanns Snævarrs um fjölskyldumálefni í samvinnu við Lagadeild Háskóla Íslands.

Um er að ræða samstarf norrænna sérfræðinga á sviði fjölskylduréttar. Samstarfið og ráðstefnan á sér langa sögu en þetta var í fyrsta sinn sem ráðstefnan er haldin á Íslandi. Þátttakendur voru um 40 talsins frá öllum norrænu ríkjunum og voru meðal annars rædd fjölmörg álitamál á réttarsviðinu, svo sem nýjar leiðir við lausn ágreiningsmála, nýjar fjölskyldugerðir, fjármálaskipulag og skipti.

Um rannsóknarstofnun Ármanns Snævarrs
Stofnunin er vettvangur fyrir lögfræðirannsóknir og þróunarstarf í málefnum fjölskyldna og barna í þverfaglegu samstarfi við önnur fræðasvið og rannsóknastofnanir sem fjalla um fjölskyldumálefni. Megináherslur hennar eru þó á lögfræði og frá sjónarhorni hennar er efnt til samstarfsverkefna.

Mynd af ráðstefnugestum