Skip to main content
29. janúar 2019

Norðurljós og stjörnur með Sævari Helga á föstudag

Gengið verður á vit stjarnanna föstudagskvöldið 1. febrúar í boði Háskóla Íslands og Ferðafélags Ísland en gangan er liður í röðinni „Með fróðleik í fararnesti.“ Þátttakendur munu safnast saman við skrifstofu Ferðafélagsins í Mörkinni 6, kl. 20 og aka í halarófu út fyrir borgarmörkin. Ferðinni er heitið að Kaldárseli í Hafnarfirði og þeir sem það vilja geta hitt hópinn þar um kl. 20.20. 

Það eru ekki ýkja mörg bílastæði í boði svo fólk þarf að leggja beggja vegna við veginn og hafa góðar gætur á öllu í náttmyrkrinu. Gengið verður frá bílastæðinu ofan við Kaldársel, það er sá staður sem margir kannast við sem upphafspunkt gönguleiðar á Helgafell. Markmið göngunnar er að hvetja fólk til þess að njóta náttúrunnar að vetri til og himingeimsins nú þegar veður geta orðið stillt og skilyrði verða til stjörnuskoðunar. 

Sævar Helgi Bragason, vísindamiðlari við Háskóla Íslands, mun lýsa því sem fyrri augu ber á kvöldhimninum en hann er fyrir löngu orðinn landsþekktur fyrir miðlun sína á undrum himingeimsins.  Hann hefur t.d. kennt stjörnufræði við góðan orðstír í Háskóla unga fólksins og í Háskólalestinni undanfarin ár sem bæði eru verðlaunaverkefni á vegum Háskóla Íslands.  Þá hefur hann farið mikinn í sjónvarpi og útvarpi og ritað bækur um hugðarefni sín. Um er að ræða fyrstu gönguna af sjö á þessu ári í samstarfi Háskólans og Ferðafélagsins undir yfirskriftinni „Með fróðleik í fararnesti“. Ferðirnar eru hugsaðar fyrir alla fjölskylduna og aðgangur að þeim er ókeypis.

„Við munum sjá Vetrarbrautina okkar og ætlum svo að skoða fyrirbæri í henni og utan hennar. Ef við erum heppin sjáum við örugglega norðurljós,“ segir Sævar Helgi Bragason, vísindamiðlari við Háskóla Íslands um gönguna á föstudagskvöld sem er eins og áður sagði helguð er himinhvolfinu. 

Vonandi verða norðurljósin sýnileg
Fáir hafa meiri ást á stjörnum himinhvolfsins hér á landi en Sævar og það kom berlega í ljós í sams konar göngu Háskólans og Ferðafélagsins í fyrra þar sem nokkur hundruð manns hlýddu á hann lýsa himinhvolfinu. Á föstudaginn kemur mun Sævar svara spurningum gesta, t.d. af hverju stjörnur eru mismunandi á litinn. Við getum tekið smá forskot á sæluna og fengið hann til að ljósta því upp: „Stjörnurnar eru mismunandi á litinn vegna þess að þær eru misheitar. Heitustu stjörnurnar eru bláhvítar en köldustu rauðar, öfugt við það sem ætla mætti því í daglegu lífi notum við rautt fyrir heitt og blátt fyrir kalt. Bláu og bláhvítu stjörnurnar eru allt að 50.000°C heitar, tíu sinnum heitari en sólin okkar, en rauðu stjörnurnar eru ekki nema um 3500°C,“ svarar Sævar að bragði.

Norðurljósin sýna sig vonandi á föstudag

Sverðþokan í sjónaukanum
Sævar og stjörnuteymið hans verða með stjörnusjónauka á staðnum og gefst göngugestum kostur á að rýna langt út í geiminn. „Við ætlum til dæmis að horfa 2,5 milljónir ljósára út fyrir Vetrarbrautina okkar á næsta nágranna okkar í geimnum, Andrómeduvetrarbrautina, sem stefnir á okkur á 110 km hraða á sekúndu eða svo. Eftir fjóra milljarða ára rekst hún á okkur. Við ætlum líka að skoða geimþoku sem heitir Sverðþokan í Óríon. Það er alveg sérstaklega glæsilegt fyrirbæri sem er í raun fæðingardeildin á himninum. Þar eru nýjar stjörnur að klekjast út úr gas- og rykhýðum. Ein þessara stjarna er heitasta stjarna sem við getum við séð á himinhvolfinu. Þegar ferðinni lýkur verður Júpíter að rísa á austurhimni og tunglið kemur upp skömmu fyrir miðnætti,“ segir Sævar og bætir við: „Svo mæli ég með því að fólk komi með handsjónauka því maður sér ansi margt með slíkum sjónaukum, til dæmis Andrómeduvetrarbrautina og Sverðþokuna í Óríon.“

Hist í Mörkinni og ekið í Kaldársel
Við upphaf ferðar verður hist við skrifstofu Ferðafélags Íslands í Mörkinni 6 kl. 20 þaðan sem ekið verður að Kaldárseli. Áætlað er að ferðin taki um tvær til þrjár klukkustundir en hún er farin í samstarfi við Ferðafélag barnanna eins og áður sagði, sprota frá Ferðafélagi Íslands. Það er því tilvalið fyrir fjölskylduna að skella sér í hressandi göngu og fræðast um leið um himintunglin.

Háskóli Íslands og Ferðafélag Íslands hafa undanfarin átta ár staðið saman að göngu- og hjólaferðum undir yfirskriftinni „Með fróðleik í fararnesti“. Reynsla og þekking fararstjóra Ferðafélagsins og þekking kennara og vísindamanna Háskólans blandast saman í áhugaverðum ferðum um höfuðborgarsvæðið og næsta nágrenni þess. 

Þátttaka er ókeypis eins og áður sagði og allir eru velkomnir. Ef ekki viðrar til himinskoðunar þennan dag verður ferðinni frestað þar til góðar aðstæður skapast og verður það auglýst á Facebook og heimasíðu HÍ og FÍ.

Hér má fá upplýsingar um allar ferðir þessa árs

Sævar Helgi Bragason