Skip to main content
12. október 2018

Nanna Hlín Halldórsdóttir varði doktorsritgerð í heimspeki

Nanna Hlín Halldórsdóttir hefur varið doktorsritgerð í heimspeki við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands. Ritgerðin nefnist Vulnerable in a Job Interview: Butler's Relational Ontology of Vulnerability as a Response to (Neo)liberalism, eða Berskjölduð í atvinnuviðtali: Tengslaverufræði Judith Butler sem viðbragð við (ný)frjálshyggju. Andmælendur voru Birgit Schippers, frá Queens University í Belfast, og Erinn Gilson, frá University of North Florida. Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Sigríðar Þorgeirsdóttur, prófessors í heimspeki og aðrir í doktorsnefnd voru Björn Þorsteinsson prófessor og Hanna Meißner. Steinunn J Kristjánsdóttir, deildarforseti Sagnfræði- og heimspekideildar, stjórnaði athöfninni sem fór fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands 28. september síðastliðinn.

Hér má skoða myndir frá vörninni.

Um rannsóknina

Síðustu ár hefur hugtakið berskjöldun (e. vulnerability) átt miklu brautargengi að fanga bæði í fræðalandslagi femínískrar heimspeki og sem þverfaglegt hugtak. Í rannsókninni eru nýleg verk heimspekingsins Judith Butler um berskjöldun skoðuð sem mannskilningur og verufræði tengsla og sem andsvar femínískrar heimspeki við einstaklingshyggju (ný)frjálshyggjunnar. Þannig gæti berskjöldun haft umbyltandi áhrif á vestræna samfélagsgerð en er það að gerast? Eigum við auðvelt með að koma fram í berskjöldun okkar? Í rannsókninni er atvinnuviðtalið sett fram sem lýsandi dæmi um hindranir á vegi slíkrar verufræði, ekki er hægt að afhjúpa berskjaldanir sínar í atvinnuviðtali ef virkileg þörf er á vinnu. Verufræði berskjöldunar gæti hins vegar náð útbreiðslu í kjölfar femínísku byltinga síðustu ára á borð við #metoo, ef bein tengsl eru gerð við kapítalísk vinnukerfi í samtímanum.

Doktorsefnið

Nanna Hlín Halldórsdóttir lauk BA-prófi í heimspeki við Háskóla Íslands árið 2008 og MA-prófi í heimspeki og gagnrýnum fræðum frá Kingston-háskóla í London árið 2012. Á námstímanum hlaut hún doktorsnemastyrk frá rannsóknarsjóði Rannís m.a. í gegnum verkefnið Feminist Philosophy Transforming Philosophy. Nanna dvaldi einnig við Háskólann í Helsinki og við tækniháskólann í Berlín á námstíma sínum. Hún hefur verið stundakennari við Háskóla Íslands og víðar meðfram námi.

Nanna Hlín Halldórsdóttir