Skip to main content
30. október 2020

Nærri sjö milljónir til grunnrannsókna á brjóstakrabbameini 

""

Styrktarsjóður Göngum saman veitti í vikunni tveimur nemendum og einum vísindamanni Háskóla Íslands samtals 6,7 milljónir króna í styrki til grunnrannsókna á brjóstakrabbameini. 

Göngum saman hefur veitt alls rúmar 107 milljónir króna til grunnrannsókna á brjóstakrabbameini frá stofnun félagsins árið 2007 og hafa nemendur og starfsmenn Háskóla Íslands notið þess ríkulega. Stykirnir hafa runnið til fjölbreyttra verkefna innan deilda skólans og þannig stutt við þekkingarleit í þágu nýrra meðferða við brjóstakrabbameinum.

Þrír aðilar fengu styrk að þessu sinni: 

  • Arna Steinunn Jónasdóttir, meistaranemi í líf- og læknavísindum við Læknadeild, hlaut 3 milljónir króna til verkefnisins „Hlutverk peroxidasin í eðlilegum og illkynja brjóstkirtli“.
  • Clara Valls Ferré, meistaranemi í líf- og læknavísindum við Læknadeild, hlaut 2,2 milljónir króna til verkefnisins „Æxlingar úr brjóstakrabbameinssjúklingum meðhöndlaðir með æðaþelssértækum sameindalyfjum“.
  • Sævar Ingþórsson, lektor við Hjúkrunarfræðideild, Íslands hlaut 1,5 milljónir króna til verkefnisins „Ummyndunaráhrif HER2 yfirtjáningar í heilbrigðum brjóstaþekjufrumum“.

Styrkveitingin var um margt óvenjuleg í ár vegna COVID-19-faraldursins. Hún fór fram á Zoom-fjarfundi þar sem styrkþegar, félagsmenn og velunnarar félagsins um allt land og einnig í útlöndum tóku þátt. Tvíeykið Vísur og skvísur flutti enn fremur tónlistaratriði.     

Um Göngum saman

Styrktarsjóður Göngum saman styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini. Styrkveitingin í ár byggist að mestu leyti á frjálsum framlögum einstaklinga sem hafa lagt hafa sitt af mörkum með þátttöku í fjáröflunum félagsins, s.s. Reykjavíkurmaraþoninu og kaupum á söluvarningi félagsins. Einnig hafa ýmis félagasamtök, fyrirtæki og einstaklingar lagt Göngum saman lið, en megináhersla er á að öll framlög renni óskipt í styrktarsjóð félagsins.

Nánari upplýsingar um félagið.

Styrkþegar og formaður stjórnar Göngum saman á Zoom-fundi