Skip to main content
23. febrúar 2018

Nærri 440 kandídatar brautskráðir frá HÍ á laugardag

Nærri 440 kandídatar brautskráðir frá HÍ á laugardag - á vefsíðu Háskóla Íslands

Tæplega 440 kandídatar úr grunn- og framhaldsnámi brautskrást frá Háskóla Íslands við hátíðlega athöfn í Háskólabíói laugardaginn 24. febrúar kl. 13. 

Athöfnin hefst með ávarpi Jóns Atla Benediktssonar, rektors Háskóla Íslands, en í framhaldinu fer fram brautskráning nemenda úr deildum af öllum fimm fræðasviðunum skólans, Félagsvísindasviði, Heilbrigðisvísindasviði, Hugvísindasviði, Menntavísindasviði og Verkfræði- og náttúruvísindasviði. Samanlagður fjöldi brautskráðra er 437 með 438 prófgráður. 188 kandídatar taka við brautskráningarskírteini sínu frá Félagsvísindasviði, 50 frá Heilbrigðisvísindasviði, 70 frá Hugvísindasviði, 59 frá Menntavísindasviði og 70 frá Verkfræði- og náttúruvísindasviði. 

Að lokinni brautskráningu kandídata mun Sigmar Aron Ómarsson, hagsmunafulltrúi Stúdentaráðs og laganemi, flytja ávarp og Háskólakórinn syngur nokkur lög.

Kandídötum er ætlað afmarkað svæði í Háskólabíói og eru þeir beðnir um að mæta ekki síðar en kl. 12.00. Hver kandídat verður með númerað sæti sem kemur fram á nafnalista sem afhentur verður með dagskrá við innganginn og er sætaskipan í samræmi við afhendingu prófskírteina. Umsjónarfólk verður á staðnum til að leiðbeina um sætaskipan.

rektor óskar brautskráningarkandídat til hamingju