Skip to main content
10. nóvember 2018

Myllarnir sigruðu í LEGO-hönnunarkeppni FLL í Háskólabíói

""

Liðið Myllarnir úr Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ bar sigur úr býtum í hinni árlegu tækni- og hönnunarkeppni FIRST LEGO League sem fram fór í Háskólabíói í dag. Liðið vann sér um leið þátttökurétt í norrænni keppni FIRST LEGO League.

Háskóli Íslands hefur staðið fyrir tækni- og hönnunarkeppninni í rúman áratug en markmið hennar er að efla færni ungs fólks á sviði tækni og vísinda með því að leggja fyrir þau spennandi verkefni sem örva nýsköpun og skapandi hugsun, byggja upp sjálfstraust og efla samskiptahæfni. 

Tuttugu lið víða af landinu mættu til leiks í Háskólabíói í morgun og voru þátttakendur hátt í 200 talsins. Liðin höfðu unnið ötullega að undirbúningi í allt haust og mættu þrautþjálfuð til keppni. Hún skiptist í fjóra meginhluta. Í fyrsta lagi áttu keppendur að forrita vélmenni úr tölvustýrðu Legói sem ætlað var að leysa tiltekna þraut sem tengist þema ársins sem að þessu sinni var himingeimurinn. Þá áttu keppendur að vinna sjálfstætt rannsóknarverkefni sem einnig tengdist geimnum. Enn fremur þurftu liðin að gera grein fyrir því hvernig þau forrituðu vélmennin sem þau mættu með í keppnina og síðast en ekki síst horfði dómnefnd til liðsheildar. Þátttaka í keppninni reyndi því á margs konar hæfni og þekkingu grunnskólanemanna.

Þegar dómnefnd hafði metið alla þessa þætti hjá liðunum stóð Myllarnir, lið Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ, uppi sem sigurvegari en það er skipað níu nemendum úr skólanum. Liðið sigraði einnig í vélmennakapphlaupi keppninnar. 

Veitt voru verðlaun í einstökum flokkum keppninnar og skiptust þau sem hér segir:
Sigurvegarar í vélmennakapphlaupi: Myllarnir úr Myllubakkaskóla
Besta liðsheildin: Galaxia Paradizo úr Grunnskóla Hornafjarðar
Besta rannsóknaverkefnið: Gravity úr Garðaskóla í Garðabæ
Besta hönnun og forritun vélmennis: Oxygen úr Grunnskóla Hornafjarðar

Sigurliðið og verðlaunahafar í einstökum flokkum hlutu verðlaunabikar úr LEGOi. Allir þátttakendur í keppninni fengu enn fremur FLL-medalíu í viðurkenningarskyni.

Myllarnir verða fulltrúar Íslands í norrænni keppni FIRST LEGO League sem fyrr segir og til að styðja liðið til þátttöku veittu fyrirtækið Krumma og Háskóli Íslands liðinu samanlagt 350 þúsund krónur í verðlaunafé en þessir tveir aðilar eru helstu bakhjarlar keppninnar.

Sigurlið keppninnar, Myllarnir úr Myllubakkaskóla, ásamt leiðbeinendum sínum.