Skip to main content
27. september 2019

Meistaranemar kynna lokaverkefni á málþingi

Fjölbreyttar rannsóknir á sviði menntavísinda verða kynntar á málþingi meistaranema sem fram fer í Háskóla Íslands 1. október nk. frá kl. 13-17. Þar munu M.Ed.- og MA-nemar sem útskrifast í október flytja stuttar kynningar á lokaverkefnum sínum í tólf málstofum.

Meðal þess sem fjallað verður um eru lýðræðislegar kennsluaðferðir sem bæta hegðun og líðan nemenda, barnabók Drekinn í þinghúsinu og námsheimsókn yngri barna á Alþingi, smáforrit sem henta í stærðfræðikennslu, námsspil í lífsleikni, birtingarmyndir vímuefna í íslenskri rapptónlist, vanlíðan drengja á skólagöngu og ýmis önnur málefni leik-, grunn- og framhaldsskóla.

Mikill vöxtur hefur verið í framhaldsnámi við Menntavísindasvið undanfarin ár en sviðið menntar kennara fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla, uppeldis- og menntunarfræðinga, íþrótta- og heilsufræðinga, tómstunda- og félagsmálafræðinga og þroskaþjálfa.

Dagskrána má nálgast hér.

Ókeypis er á málþingið og er það öllum opið. 

Viðburðurinn á Facebook

Fjölbreyttar rannsóknir á sviði menntavísinda verða kynntar á málþingi meistaranema sem fram fer í Háskóla Íslands 1. október nk. frá kl. 13-17.