Skip to main content
20. nóvember 2019

María Guðjónsdóttir hlýtur 116 milljóna króna Evrópustyrk

https://commons.wikimedia.org/wiki/File:Meganyctiphanes_norvegica2.jpg

María Guðjónsdóttir, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild, hefur hlotið Evrópustyrk frá BlueBio Cofund Call sem nemur 116 milljónum íslenskra króna.  BlueBio Cofund Call er svokölluð ERA-NET samstarfsáætlun sem heyrir undir H2020-rannsóknaáætlun Evrópusambandsins og er ætlað að styðja rannsókna- og þróunarsamstarf ólíkra stofnana.

Verkefni Maríu,  BIOZOOSTAIN, snýst um sjálfbæra nýtingu og vöruþróun á rauð- og ljósátu sem fengin er sem hliðarafurð frá veiðum á uppsjávarfiski. Samstarfsaðilar Háskóla Íslands í rannsókninni eru Landspítalinn - Blóðbankinn, Matís, DTU-Aqua í Danmörku, Bologna-háskóli á Ítalíu og Universitat Politecnica de Valencia á Spáni. Samstarfsaðilar úr atvinnulífi eru Síldarvinnslan SVN á Neskaupstað og FF Skagen í Danmörku.  Gert er ráð fyrir þjálfun bæði doktors- og meistaranemenda í verkefninu og er áætlað er að það hefjist núna í janúar.

Hér má lesa nánar um ERA-NET samstarfsáætlunina.

(Mynd af ljósátu efst í frétt fengin af Wikipediu:)

María Guðjónsdóttir