Skip to main content
24. september 2018

Lög eftir Porter, Rodgers og Jón Múla  á fyrstu háskólatónleikum haustsins

Háskólatónleikar hefjast á ný nú í september og á fyrstu tónleikum haustsins 26. september flytja þau Valgerður Guðnadóttir söngkona, Helga Laufey Finnbogadóttir píanóleikari, Guðjón Steinar Þorláksson kontrabassaleikari og Erik Qvick slagverksleikari íslensk og erlend sönglög og söngleikjalög. Einnig verða frumflutt ný lög eftir Helgu Laufeyju. Tónleikarnir verða á Litla torgi Háskólatorgs og hefjast þeir kl. 12.30. 

Enginn aðgangseyrir er að tónleikunum og allir eru velkomnir. 

Um listamennina
Valgerður Guðnadóttir nam við Söngskólann í Reykjavík hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur og útskrifaðist þaðan vorið 1998. Eftir það hélt hún til Lundúna þar sem hún stundaði söngnám við framhaldsdeild Guildhall School of Music and Drama. Hún hóf söngferil sinn með hlutverki Maríu í West Side Story í Þjóðleikhúsinu 18 ára gömul. Síðan þá hefur hún sungið og leikið á ólíkum vettvangi, t.d. Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu og Íslensku óperunni. 

Valgerður hefur komið víða fram sem einsöngvari hér heima og erlendis, m.a. á opnunarhátíð Hörpu og með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún söng hlutverk Maríu í Söngvaseiði og hlaut fyrir það Grímuna, Íslensku leiklistarverðlaunin, sem söngvari ársins. Valgerður hefur farið með mörg hlutverk á ferlinum, allt frá söngleikjum til óperu eins og t.d. Fantine í Vesalingunum, Papagenu í Töfraflautunni, Mercedes í Carmen og Barbarinu í Brúðkaupi Fígarós. 

Síðastliðið haust fór hún með hlutverk Bertu í Rakaranum frá Sevilla hjá Íslensku óperunni en fyrir það hlutverk hlaut hún tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem söngkona ársins í flokknum sígild- og samtímatónlist. Valgerður hlaut starfslaun listamanna fyrir árið 201-2018 í 12 mánuði. Hún söng einsöng á Vínartónleikum Sinfóníunnar í janúar sl., flutti verkið Völuspá í Færeyjum í febrúar og söng í sama mánuði hið krefjandi hlutverk Christine Daee í Phantom of the Opera eða Óperudraugnum. Fyrir það hlaut hún tilnefningu til Grímunnar 2018.

Helga Laufey Finnbogadóttir lauk burtfararprófi á píanó frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og stundaði síðan framhaldsnám við Sweelinck-tónlistarháskólann í Amsterdam, fyrst í klassískri tónlist en söðlaði yfir í djass og útskrifaðist frá skólanum 1994. 

Hún hefur starfað við marga tónlistarskóla sem undirleikari, m.a. við Söngskólann í Reykjavík, söngdeild Tónlistarskóla FÍH, Domus Vox, Tónskóla Sigursveins og söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar Demetz auk þess að kenna á píanó við Tónlistarskólann á Seltjarnarnesi. Hún hefur tekið þátt í tónleikahaldi innanlands og utan, m.a. leikið í Norræna húsinu, á Gljúfrasteini og Múlanum.

Guðjón Steinar Þorláksson lauk burtfararprófi á kontrabassa frá Tónlistarskóla Kópavogs og kennaraprófi frá Kennaraháskólanum. Hann hefur kennt við Tónskólann Do Re Mí frá árinu 1995 og Tónlistarskólann á Seltjarnarnesi frá árinu 1996 þar sem hann er aðstoðarskólastjóri. 

Guðjón hefur spilað jöfnum höndum klassíska tónlist, dægurtónlist og djasstónlist með hinum ýmsum tónlistarmönnum hér á landi. Hann hefur m.a. spilað á Múlanum, stofutónleikum á Gljúfrasteini og í Norræna húsinu.

Erik Qvick stundaði framhaldsnám við Tónlistarháskólann í Ingesund og lauk meistaraprófi árið 1998. Aðalkennarar hans þar voru Terje Sundby, Magnus Gran og Raymond Strid. Þá hélt hann til Gautaborgar og lék þar með djass- og blústónlistarmönnum, m.a. á plötur hjá tompet-leikaranum Lasse Lindgren.

Tónleikar starfsársins
 

Erik Qvick, Valgerður Guðnadóttir, Guðjón Steinar Þorláksson og Helga Laufey Finnbogadóttir