Skip to main content
16. nóvember 2022

LEGO-keppni og fjölskylduskemmtun í Háskólabíói á laugardag

LEGO-keppni og fjölskylduskemmtun í Háskólabíói á laugardag - á vefsíðu Háskóla Íslands

Um 130 grunnskólanemendur á aldrinum 10-16 ára taka þátt í tækni- og hönnunarkeppni FIRST LEGO League laugardaginn 19. nóvember í Háskólabíói. Mikil tilhlökkun er í lofti því þetta er í fyrsta sinn í þrjú ár sem þátttakendur koma saman til keppni en heimsfaraldur kórónuveiru varð til þess að keppnin féll niður árið 2020 og hún fór fram á netinu í fyrra. Öllum er velkomið að fylgjast með keppninni og opið verður í Vísindasmiðjunni í Háskólabíói frá kl. 12.30. Aðgangur er ókeypis.

Markmiðið með Legókeppninni er að efla færni og lausnarmiðaða hugsun ásamt því að vekja áhuga ungs fólks á tækni og vísindum. Keppnin byggist á spennandi verkefnum sem örva nýsköpun, byggja upp sjálfstraust og efla samskiptahæfni. Verkefnin eru ólík á milli ára en öll fela þau í sér áskoranir sem sóttar eru í Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Áskorun þessa árs kallast OFURKRAFTAR og snýst um orkunýtingu og auðlindir jarðar.
 
Keppninni er skipt í fjóra hluta. Meðal verkefna keppenda er að forrita vélmenni úr tölvustýrðu Legói til að leysa tiltekna þraut sem tengist áskorun þessa árs. Þá eiga keppendur að vinna nýsköpunarverkefni sem tengist orkumálum í þeirra eigin nærsamfélagi. Enn fremur þurfa keppnisliðin að gera grein fyrir því hvernig þau hanna og forrita vélmennið og loks er horft sérstaklega til liðsheildar. 

Kynnir keppninnar er Katrín Lilja Sigurðardóttir, Sprengju-Kata, og lýsing á vélmennakappleiknum verður í höndum Jóns Arnar Guðbjartssonar. Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu frá vélmennakappleiknum frá 9-15.30.

Streymi frá keppninni:

Sigurliði býðst að taka þátt í úrslitakeppni í Skandinavíu

Fimmtán lið grunnskólanema víðs vegar af landinu eru að þessu sinni skráð til leiks. Allt að tíu manns eru í hverju liði ásamt leiðbeinanda og hafa liðin unnið ötullega að undirbúningi síðan snemma hausts.
 
Það lið sem ber sigur úr býtum í keppninni á kost á að taka þátt í úrslitakeppni FIRST LEGO League Skandinavia sem haldin verður í Osló þann 3. desember nk. Auk verðlauna fyrir sigur í keppninni eru veitt verðlaun fyrir bestu lausn í hönnun og forritun á vélmenni, besta nýsköpunarverkefnið og bestu liðsheild.

Skemmtun fyrir alla fjölskylduna

Öllum er velkomið að fylgjast með spennandi keppni en opið verður í Vísindasmiðjunni frá kl. 12.30–16.00 þar sem áhugasöm á öllum aldri geta uppgötvað og upplifað með tilraunum og leik. Í anddyri Háskólabíós verður básakynning þar sem keppendur segja frá sínum verkefnum og þá verður einnig á staðnum vindmyllusmiðja og rafknúinn kappakstursbíll Team Spark til sýnis og prófunar. Háskóli Íslands sér um framkvæmd Legókeppninnar. 
 
Vefsíða FLL á Íslandi

Þátttakendur í Legókeppninni