Skip to main content
15. október 2018

Lært með leiðtogum í nýrri fyrirlestraröð á Menntavísindasviði

Lærum með leiðtogum er heiti á nýrri fyrirlestraröð sem forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands hleypir af stokkunum í október.

Allir fyrirlesarar eiga það sameiginlegt að vera leiðtogar og brautryðjendur á ólíkum sviðum samfélagsins. Þau munu segja frá verkefnum sínum og ekki síst miðla sínum persónulega lærdómi af því að takast á við áskoranir. Fyrirlestrarnir munu fjalla um menntun, hreyfingu, andlega líðan, kvikmyndir, jafnrétti og eitraða karlmennsku, markmiðasetningu, samskipti, ímyndunaraflið og samfélagslega þátttöku.

Lærum með leiðtogum hefur það markmið að veita nemendum og starfsfólki Háskólans innblástur, skapa umræður og vera uppspretta lærdóms. Menntavísindasvið býður einum framhaldsskóla á hvern viðburð til að mynda betri tengsl og byggja brýr milli skólastiga.

„Hugmyndin að baki Lærum með leiðtogum er að opna Menntavísindasvið fyrir þeim straumum og krafti sem er í samfélaginu og fá í heimsókn einstaklinga sem ég veit að munu snerta við okkur á einn eða annan hátt. Það skiptir máli að við yfirvegum hvernig lífi við viljum lifa, í hvernig tengslum við viljum vera við umhverfi okkar og annað fólk. Hér skipta skólarnir og hið formlega menntakerfi miklu máli, en ekki síður hinn óformlegi vettvangur og sú reynsla sem við fáum með þátttöku í félags- og tómstundastarfi. Lífið sjálft er lærdómur og það verður dýrmætt að fá að læra af og með þeim leiðtogum sem heimsækja okkur í vetur,“ segir Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.

„Hugmyndin að baki Lærum með leiðtogum er að opna Menntavísindasvið fyrir þeim straumum og krafti sem er í samfélaginu og fá í heimsókn einstaklinga sem ég veit að munu snerta við okkur á einn eða annan hátt.“

— Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands

Sex leiðtogar munu heimsækja Menntavísindasvið skólaárið 2018-2019. Fyrirlestrarnir eru haldnir að jafnaði á miðvikudögum í hádeginu frá kl. 12:10-12:50 í Bratta í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð.

Dagskráin er sem hér segir:

24. október 2018

400 kílómetrar af ástríðu og áskorunum – Elísabet Margeirsdóttir, hlaupari og aðjúnkt við Menntavísindasvið

14. nóvember 2018

Að vernda ímyndunarafl og túlkun nemenda Ólafur Stefánsson, fyrrum landsliðsmaður í handbolta og stofnandi KeyWe

16. janúar 2019

Hvernig segjum við sögur ungs fólks? Baldvin Z., kvikmyndagerðarmaður og leikstjóri

23. janúar 2019

Framtíðarleiðtogar  Alda Karen Hjaltalín, framkvæmdastjóri AK Consultancy og fyrirlesari

13. febrúar 2019

Verum #huguð Kristín Hulda Gísladóttir, sálfræðinemi við Háskóla Íslands og formaður Hugrúnar, geðfræðslufélags háskólanema

6. mars 2019

Leikreglur karlmennskunnar Þorsteinn V. Einarsson, stofnandi og ritstjóri #karlmennskan á samfélagsmiðlum, kennari og fyrrum starfsmaður félagsmiðstöðva

Athugið að dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar. Fyrirlestrar verða teknir upp og birtir á YouTube-rás Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.

Verið öll velkomin!

Viðburðurinn á Facebook

Lærum með leiðtogum er heiti á nýrri fyrirlestraröð sem forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands hleypir af stokkunum í október. Fyrsti fyrirlesturinn verður haldinn miðvikudaginn 24. október 2018.