Skip to main content
29. janúar 2020

Læknanemi við HÍ hlaut Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands

""

Halldór Bjarki Ólafsson, nemi í læknisfræði við Læknadeild Háskóla Íslands, hlýtur Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands í ár fyrir verkefni um tengsl óeðlilegs blóðhags við bráða fylgikvilla og dánartíðni eftir skurðaðgerðir. Halldór Bjarki tók við verðlaununum úr hendi Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag, miðvikudaginn 29. janúar.

Verkefni Halldórs Bjarka var eitt fimm öndvegisverkefna sem tilnefnd voru til verðlaunanna en þau eru árlega veitt námsmönnum sem hafa unnið að framúrskarandi sumarverkefnum fyrir styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna sumarið á undan.

Verkefni Halldórs Bjarka nefnist „Tengsl óeðlilegs blóðhags við bráða fylgikvilla og langtíma útkomu eftir skurðaðgerðir“ og það vann hann undir leiðsögn Martins Inga Sigurðssonar, sérfræðings í svæfinga- og gjörgæslulækningum á Landspítala og prófessors við Læknadeild.

Í því voru tengsl milli breytileika í stærð rauðra blóðkorna og skamm- og langtíma dánartíðni eftir skurðaðgerðir könnuð en slíkur breytileiki er mældur fyrir nær allar aðgerðir. Til þess voru notaðar upplýsingar úr íslenska aðgerðargagnagrunninum sem hefur að geyma upplýsingar um hartnær 40 þúsund skurðaðgerðir á Landspítala. 

Í ljós kom að dánartíðni einstaklinga með aukinn breytileika var hærri í kjölfar skurðaðgerða en einstaklinga með eðlilegan breytileika. Þessum áhrifum er mögulega miðlað gegnum langvinnt bólguástand eða vannæringu, sem hefur áhrif á stærðardreifnina. Niðurstöðurnar benda til þess að mæling á stærðardreifni rauðra blóðkorna megi nota til að áhætttuflokka einstaklinga fyrir aðgerð. 

Næstu skref verkefnisins miða að því að kanna hvort unnt sé að hafa áhrif á stærðardreifnina eða nota hana til að fylgjast með árangri inngripa sem ætlað er að bæta horfur aðgerðarsjúklinga. Vonast er til að niðurstöðurnar muni bæta horfur aðgerðasjúklinga sem mun þá hafa mikinn ávinning í för með sér fyrir þá og heilbrigðiskerfið sjálft.

Hin verkefnin fjögur, sem einni voru tilnefnd, fengu sérstaka viðurkenningu en þess má geta að nemi í tölvunarfræði við Háskóla Íslands stóð að einu þeirra ásamt samstarfsaðila úr Háskólanum í Reykjavík, eins og lesa má um á vef Háskóla Íslands.
 

Halldór Bjarki Ólafsson, nemi í læknisfræði við Læknadeild Háskóla Íslands, tekur við Nýsköpunarverðlaunum forseta Íslands úr hendi Guðna Th. Jóhannessonar forseta.