Skip to main content
20. júní 2019

Kynbundið ofbeldi þema Ritsins:1/2019

Öðru sinni beinir Ritið, tímarit Hugvísindastofnunar, sjónum að kynbundnu ofbeldi og sýnir sá fjöldi greina sem þar birtist hversu þörf og víðtæk sú umræða er.

Í heftinu eru birtar átta greinar um efnið, þar af sex ritrýndar en þær óritrýndu eru þýðingar á textum tveggja skálda, þeirra Auðar Övu Ólafsdóttur og Nailu Zahan Ana, sem fluttir voru á ráðstefnu um sársauka árið 2017. Ljóðið „Næturgestur“ eftir Öldu Björk Valdimarsdóttur prýðir bæði forsíðuna og er birt í heftinu sjálfu.

Ritrýndu greinarnar ber víða niður. Í þeirri fyrstu fjalla kynjafræðingarnir Finnborg Salome Steinþórsdóttir og Gyða Margrét Pétursdóttir um birtingarmyndir nauðgunarmenningar á Íslandi. Fjórir textar eru eftir doktorsnema í bókmenntum, greinar þeirra Guðrúnar Steinþórsdóttur um Dísusögu, Kjartans Más Ómarssonar um ljóðabálk eftir Sjón, Sigrúnar Margrétar Guðmundsdóttur um kvikmyndina Rökkur og Hauks Ingvarssonar um rithöfundinn Guðmund Daníelsson og áhrif Williams Faulkners á hann. Síðast en ekki síst birtist í ritinu grein Dagnýjar Kristjánsdóttur bókmenntafræðings um sjálfsskaða.

Fjórar ritrýndar greinar falla utan þema. Grein Margrétar Guðmundsdóttur málfræðings fjallar um næmiskeið í máltöku og þar er reyndar, eins og í þemagreinunum, ofbeldi einnig til umfjöllunar þótt ekki sé það kynbundið. Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur skrifar um skáldskaparheim Elísabetar K. Jökulsdóttur, Hjalti Hugason guðfræðingur birtir fyrri grein sína af tveimur um áhrif Lúthers og siðbótarinnar á Íslandi og að síðustu fjallar Bergljót S. Kristjánsdóttir bókmenntafræðingur um samspil Tourette og ljóðlistar. Öllum textum heftisins eru gerð betri skil í inngangi ritstjóra, „fræ / í skál“.

Þemaritstjórar heftisins eru þær Bergljót S. Kristjánsdóttir, Guðrún Steinþórsdóttir og Sigrún Margrét Guðmundsdóttir en aðalritstjóri þess er Rannveig Sverrisdóttir. Forsíðuna prýðir eins og áður sagði ljóð Öldu Bjarkar Valdimarsdóttur í grafískri hönnun Hrefnu Sigurðardóttur. Um umbrot sá Helgi Hilmarsson og Lúther Jónsson um prófarkalestur.

Hér á nálgast Ritið:1/2019 í rafrænni útgáfu.

Ritið:1/2019