Skip to main content
17. mars 2021

Kathryn hlýtur inngöngu í Global Young Academy

Kathryn hlýtur inngöngu í Global Young Academy - á vefsíðu Háskóla Íslands

Kathryn Crowe, nýdoktor í talmeinafræði við Háskóla Íslands, hefur hlotið inngöngu í Global Young Academy.

Global Young Academy eru alþjóðleg samtök framúrskarandi ungra vísindamanna. Í samtökunum eru um 200 vísindamenn frá öllum heimshornum, á aldursbilinu 30 – 40 ára, sem hafa lokið doktorsprófi. Markmið samtakanna er að gefa ungum vísindamönnum rödd og hvetja til alþjóðlegs samstarfs og samræðna með áherslu á vísindi, menntun, þróun starfsframa í vísindum og að efla stoðir vísinda í þróunarlöndum. 

Aðild að samtökunum byggir á framlagi til vísinda og ákveðnu matsferli hjá starfandi meðlimum. Aðildin gildir í fimm ár. 

Kathryn lauk doktorsprófi frá Charles Sturt University í Ástralíu árið 2013 og hefur síðan þá m.a. gegnt nýdoktorastöðum við Rochester Institute of Technology í New York og Kaupmannahafnarháskóla. Hún kom til starfa á nýdoktorastyrk við Læknadeild Háskóla Íslands árið 2019  og sinnir bæði kennslu og rannsóknum í talmeinafræði.

Sjá einnig: Verðlaunuð fyrir árangur í rannsóknum