Skip to main content
26. apríl 2018

Kallað eftir tillögum að málstofum á ráðstefnu um hrunið

""

Opnað hefur verið fyrir skráningu á ráðstefnuna „Hrunið þið munið?“ sem fram fer í Háskóla Íslands 6. október 2018. Ráðstefnunni er ætlað að miðla til almennings rannsóknum fræðimanna og nemenda innan og utan Háskóla Íslands á aðdragana og afleiðingum af hruni íslenska bankakerfisins haustið 2008. 

Á ráðstefnunni verður hrunið skoðað í víðu samhengi, m.a. þær breytingar sem hrunið hafði í för með sér í íslensku samfélagi, lærdóma sem draga má af því og margþætt áhrif á stofnanir, menningu og samfélagslega umræðu. Hvatt er til þess að fólk af ólíkum fræðasviðum, innan og utan Háskóla Íslands, taki höndum saman við skipulagningu málstofa. Ábyrgðaraðilar þurfa þó í öllum tilvikum að koma úr hópi starfsmanna Háskóla Íslands.

Áhugasömum fræðimönnum og fagaðilum er boðið að senda inn 70 orða ágrip með efnislýsingu fyrir málstofu og titla þriggja til fjögurra 15-20 mín. erinda fyrir málstofuna. Ágripið þarf að innihalda stutta lýsingu á viðfangsefni eða markmiði málstofunnar og helstu niðurstöðum eða lærdómi. Ágripin verða birt á heimasíðu ráðstefnunnar og nýtt í tengslum við kynningu á henni.

Skilafrestur tillagna að málstofum er 15. maí næstkomandi. 

Fólk er einnig hvatt til að senda inn tillögur að annars konar viðburði í húsnæði á vegum Háskóla Íslands þennan dag (pallborðsumræðum, kvikmyndasýningu, listgjörningi o.s.frv.).

Dagskrárnefnd ráðstefnunnar fer yfir þau ágrip sem berast og velur málstofur. 

Upplýsingar um samþykkt erindi verða veittar í kringum 15. júní 2018. Í dagskrárnefnd sitja Berglind Rós Magnúsdóttir dósent, tilnefnd af Menntavísindasviði, Jón Karl Helgason prófessor, tilnefndur af Hugvísindasviði, Kristín Loftsdóttir prófessor, tilnefnd af Félagsvísindasviði, Magnús Diðrik Baldursson, skrifstofustjóri rektorsskrifstofu, tilnefndur af rektor, Ragnar Sigurðsson prófessor, tilnefndur af Verkfræði- og náttúruvísindasviði, og Rúnar Vilhjálmsson, tilnefndur af Heilbrigðisvísindasviði.

Vinsamlegast skilið ágripum og stuttri ferilskrá þátttakenda (hámark ein bls.) með tölvupósti til Magnúsar Diðriks Baldurssonar (mb@hi.is).

Mótmælendur á Austurvelli