Skip to main content
26. janúar 2018

Jöklar í vísindum, listum og myndum

Jöklar í vísindum, listum og myndum - á vefsíðu Háskóla Íslands

„Jöklar í vísindum, listum og myndum“ er yfirskrift nýrrar ljósmyndasýningar sem opnuð verður föstudaginn 26. janúar á Háskólatorgi, í Tröðinni. Sýningin mun standa yfir í fjórar vikur, þ.e. til 23. febrúar. Myndirnar á sýningunni eru eftir Snævarr Guðmundsson jöklajarðfræðing og Þorvarð Árnason, umhverfisfræðing og forstöðumann Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Höfn í Hornafirði. Sýningin fjallar um íslenska jökla og leggur bæði áherslu á myndræna skráningu á áhrifum hnattrænna loftslagsbreytinga á jökla og fegurð þeirra og tign.

Snævarr Guðmundsson er deildarstjóri hjá Náttúrustofu Suðausturlands með aðsetur á Höfn í Hornafirði. Hann hefur stundað rannsóknir á íslenskum jöklum og hopi þeirra um árabil. Í rannsóknum sínum hefur Snævarr m.a. skoðað möguleika þess að meta hop jökla út frá sögulegum myndheimildum, einkum ljósmyndum og kortum. Hann hefur þegar birt eina grein um slíkar rannsóknir í Jökli. Snævarr hefur um langa hríð lagt stund á ljósmyndun samhliða vísindastörfum og gefið út tvær bækur, Þar sem landið rís hæst - Öræfajökull og Öræfasveit (1999) og Íslenskur stjörnuatlas (2004), auk þess að leggja til ljósmyndir af landslagi, jöklum og stjarnfræðilegum fyrirbærum í bækur eftir aðra höfunda.

Þorvarður Árnason er forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði. Hann hefur fengist við ljósmyndun og kvikmyndagerð í um þrjá áratugi samhliða fræðistörfum. Þorvarður hefur skrifað nokkrar fræðigreinar um ljóslistir, m.a. í Tímarit Máls og Menningar. Hann hefur einnig leitast við að þróa sjónrænar rannsóknaraðferðir, einkum fyrir rannsóknir á landslagi og upplifun þess en seinni árum einnig til að afla og miðla heimildum um áhrif hnattrænna loftslagsbreytinga á íslenska jökla. Þorvarður hefur haldið fjölda einkasýninga á ljósmyndum sínum og gefið út eina bók, Jökulsárlón – Árið um kring (2010).

Myndirnar á sýningunni voru upphaflega útbúnar vegna ráðstefnunnar „Jöklar í bókmenntum, listum og lífinu“ sem fram fór á Höfn dagana 28.-30. apríl 2017. Ráðstefnan var á vegum Rannsóknasetursins á Hornafirði í samvinnu við Náttúrustofu Suðausturlands og Menningarmiðstöð Hornafjarðar. Til ráðstefnunnar var boðið rithöfundum og fræðimönnum á sviði bókmennta, myndlistar, heimspeki og jöklafræða, auk þess sem settar voru upp sýningar í Listasafni Svavars Guðnasonar og í Nýheimum.

Dagskrá hennar má finna á vef Rannsóknasetursins. Fyrirlestrarnir voru teknir upp af Ríkisútvarpinu og eru efni þáttaraðar sem finna má á vef RÚV.

Ráðstefnan, þ.m.t. gerð þessara mynda, var styrkt af Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, Vinum Vatnajökuls og rektor Háskóla Íslands.

Jökull
Jökull
Kort af vatnajökli
Jökull