Skip to main content
3. september 2020

Hvernig má meta kostnað og ávinning af ferðatakmörkunum?

Hvernig má meta kostnað og ávinning af ferðatakmörkunum? - á vefsíðu Háskóla Íslands

Tekist er á um það í samfélaginu þessa dagana að hvort og þá hvernig haga eigi ferðatakmörkunum á landamærum á þessum óvenjulegu tímum og þar vegast á ýmis sjónarmið. En hvernig er hægt að meta ávinning og kostnað af því að hafa ferðatakmarkanir á landamærum Íslands?

Í nýju fræðslumyndbandi fer Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor við Hagfræðideild Háskóla Íslands, yfir það hvernig má framkvæma hagfræðilegt mat á fyrirkomulagi ferða til landsins á þeim óvenjulegu tímum sem fylgja kórónuveirufaraldrinum. Í myndbandinu kynnir Tinna eina aðferð sem dæmi um þá útreikninga sem hægt að nota og til hvaða þátta þarf að horfa við slíka útreikninga.

Myndbandið má nálgast hér að neðan.

"Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor við Hagfræðideild Háskóla Íslands. MYND/Kristinn Ingvarsson"