Skip to main content
18. mars 2021

Hvatningarviðurkenningar Álklasans 2021 afhentar

Hvatningarviðurkenningar Álklasans 2021 afhentar - á vefsíðu Háskóla Íslands

Nýsköpunarmót Álklasans var haldið þriðjudaginn 16. mars í beinu streymi frá Háskólanum í Reykjavík. Tveir nemendur frá Háskóla Íslands tóku þar við hvatningarviðurkenningum klasans fyrir verkefni sem þeir vinna að.

Þetta er í fjórða sinn sem mótið er haldið en árið 2020 féll mótið niður vegna Kórónuveirufaraldursins og þeirra samkomutakmarkana sem voru í gildi. Að mótinu standa Álklasinn, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Samtök iðnaðarins og Samál.

Hvatningarviðurkenningar Álklasans voru afhentar fimm nemendaverkefnum sem öll tengjast áli á einn eða annan hátt. Nemendurnir sem fengu viðurkenningu í ár voru: 

  • Aðalsteinn Bragason, Ingvar Birgir Jónsson og Sverrir Ólafsson, frá Stóriðjuskóla Ísal, fyrir verkefnið: Straummælingar skauta framkvæmdar úr skautskiptitækjum.
  • Áslaug Guðmundsdóttir, frá Háskóla Íslands, fyrir verkefnið: Straummælingar forskauta í kerskálum álvera.
  • Berglind Höskuldsdóttir, frá Háskólanum í Reykjavík, fyrir verkefnið: Innleiðing á rauntímaefnagreiningu í kerskála álvers.
  • Diljá Heba Petersen, frá KTH og Háskóla Íslands, fyrir verkefnið: Í átt að hringrásarhagkerfi: Meðhöndlun úrgangs í íslenskum orkufrekum iðnaði.
  • Sarah Elizabeth Di Bendetto, frá Háskólanum í Reykjavík, fyrir verkefnið: Hermun á loftstreymi og varmaflutningi undir yfirbyggingu rafgreiningarkers fyrir álframleiðslu.

Stuðningsaðilar hvatningarviðurkenninganna voru að þessu sinni, Alcoa Fjarðaál, Efla, Íslandsstofa, Landsbankinn, Mannvit, Norðurál, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Rio Tinto á Íslandi, Samál og Samtök iðnaðarins.

 Við óskum viðurkenningarhöfum hjartanlega til hamingju.

 Hægt er að horfa á upptöku frá Nýsköpunarmóti Álklasans með því að smella á meðfylgjandi hlekk.

Nýsköpunarmót Álklasans var haldið þriðjudaginn 16. mars. Hvatningarviðurkenningar Álklasans voru afhentar fimm nemendaverkefnum sem öll tengjast áli á einn eða annan hátt.