Skip to main content
2. maí 2019

Helga heiðursvísindamaður Landspítala 2019

Helga Jónsdóttir, prófessor við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, er heiðursvísindamaður Landspítala 2019, en tilkynnt var um útnefninguna á Vísindum á vordögum, árlegri uppskeruhátíð vísindastarfs á Landspítala, í dag. Helga hlýtur 400 þúsund króna heiðursfé.

Helga er prófessor í hjúkrunarfræði við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og forstöðumaður hjúkrunar langveikra fullorðinna í samtengdri stöðu á Landspítala. Hún lauk BS-prófi hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 1981 og meistara- og doktorsprófi í sömnu grein frá Háskólanum í Minnesota árið 1995.

Helga hefur einkum fengist við eigindlegar og megindlegar rannsóknir á reynslu, einkennum og líðan fólks með ýmsa langvinna sjúkdóma, einkum lungna- og taugasjúkdóma og fjölskyldna þeirra ásamt því að þróa og prófa hjúkrunarþjónustu byggða á samráði fyrir þessa einstaklinga. Rannsóknirnar eru unnar í samvinnu fjölda vísindamanna innanlands og utan og hafa birst ríflega 70 ritrýndar tímaritsgreinar byggðar á þessum og fleiri rannsóknum.

Þrír hjúkrunarfræðingar hafa lokið doktorsprófi undir leiðsögn Helgu og nokkrir eru í doktorsnámi. Þá eru hjúkrunarfræðingar, sem lokið hafa meistaraprófi undir hennar leiðsögn, á þriðja tug.

Helga vinnur að eftirfarandi rannsóknarverkefnum um þessar mundir:

  • Inntak og árangur samráðs til eflingar heilbrigðis einstaklinga með LLT og fjölskyldum þeirra. Styrkt af Rannsóknarsjóði HÍ, Vísindasjóði LSH og B-hluta Vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
  • Klínískt mat og meðferð einstaklinga með gaumstol og fjölskyldur þeirra. Samstarfsverkefni HÍ, LSH og sjúkrahúsa í Litháen og Danmörku.
  • Þróun og mat á ActivABLES-tækjabúnaðinum fyrir einstaklinga með heilablóðfall. Styrkt af NordForsk.
  • Ákvörðunartaka um lífslokameðferð taugasjúklinga á sjúkradeild. Styrkt af Vísindasjóði LSH og Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur.
Helga Jónsdóttir