Skip to main content
17. janúar 2018

Heilsa háskólasamfélagsins í brennidepli

Pallborðsumræður um geðheilbrigðismál, blóðþrýstingsmælingar og kennsla í skyndihjálp er meðal þess sem bíður gesta á Heilsudegi háskólans á Háskólatorgi fimmtudaginn 18. janúar. Heilsudagurinn er opinn öllum og stendur frá kl. 11:30 – 14:00.

Dagskráin hefst kl. 11:30 með pallborðsumræðum um geðheilsu og úrræði háskólanemenda á Litla torgi.

Stúdentaráð Háskóla Íslands og Landssamtök Íslenskra Stúdenta (LÍS) hafa undanfarið beitt kröftum sínum að geðheilbrigði íslenskra háskólanemenda og krafist úrbóta í úrræðum. Þá hefur sviðsráð Heilbrigðisvísindasviðs einnig tekið geðheilbrigði nemenda til umfjöllunar og meðal annars kannað andlega líðan nemenda við sviðið.

Mælendur í pallborði verða:

  • Aldís Mjöll Geirsdóttir, formaður LÍS
  • Bjarni Halldór Janusson, Stúdentaráðsliði
  • Gunnar Hrafn Birgisson, forstöðumaður  sálfræðiráðgjafar háskólanema
  • Ingibjörg Sveinsdóttir, doktor í klínískri sálfræði og starfsmaður Velferðarráðuneytis
  • Katrín Sverrisdóttir, starfandi sálfræðingur við Háskóla Íslands

Fundarstjóri verður Elísabet Brynjarsdóttir, formaður sviðsráðs Heilbrigðisvísindasviðs.

Nemendum og starfsfólki Háskóla Íslands er einnig boðið að sækja heilsutengda þjónustu og fræðslu á Háskólatorgi á milli kl. 12:30 og 14.

Á Háskólatorgi verða eftirfarandi stöðvar:

  • Blóðsykurs- og blóðþrýstingsmælingar á vegum Hjúkrunarfræðideildar
  • Fróðleikur um tannheilsu og tannlæknaþjónustu Háskólans
  • Kynning á Sálfræðiráðgjöf Háskólans
  • Blóðbankinn kynnir starfsemi sína og Blóðbankabíllinn verður fyrir utan Odda
  • Hugrún geðfræðslufélag fjallar um geðheilbrigði
  • Bjargráður sýnir réttu tökin í skyndihjálp
  • Kynfræðsla í boði Ástráðs, kynfræðslufélags Læknanema
  • Náms- og starfsráðgjöf HÍ kynnir starfsemi sína

Sviðsráðs Heilbrigðisvísindasviðs stendur að skipulagningu Heilsudagsins með aðkomu nemenda úr öllum deildum sviðsins.

Nemendur á Heilbrigðisvísindasviði