Skip to main content
8. mars 2018

Háskóli Íslands og Alvotech efla samstarf sitt

Háskóli Íslands og lyfjafyrirtækið Alvotech undirrituðu í dag samning sín á milli um aukið samstarf á sviði nýsköpunar, rannsókna og kennslu.  Markmiðið með samningnum er að nýta sérþekkingu beggja aðila, tækni, krafta og aðstöðu eins og kostur í þágu nemenda og stafsmanna beggja aðila og samfélagsins alls. 

Í samningnum er gert ráð fyrir að starfsfólki Alvotech, nemendum og starfsfólki Háskóla Íslands verði auðveldað aðgengi að mikilvægri sérfræðiþekkingu sem er til staðar innan fyrirtækisins og Háskólans. Ætlunin er að efla framgang vísindalegrar þekkingar á þeim fræðasviðum sem snúa að starfsemi Alvotech en fyrirtækið sérhæfir sig í þróun og framleiðslu líftæknilyfja. Með samningnum verður leitað leiða fyrir þverfræðilegt samstarf í kennslu, rannsóknum og nýsköpun en báðir aðilar eru sammála um mikilvægi nýsköpunar fyrir íslenskt atvinnulíf og samfélag.  

„Fyrir hönd Háskóla Íslands fagna ég þessu samkomulagi. Markmið Vísindagarða Háskóla Íslands er bæði að efla íslenskt þekkingarsamfélag og auka tengsl háskólastarfsemi og  atvinnulífs. Þverfræðilegt samstarf Háskóla Íslands og Alvotech mun bjóða upp á margs konar ný tækifæri í nýsköpun, kennslu og rannsóknum íslensku samfélagi til heilla,“ sagði Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, við undirritun samningsins í dag. 

Með samkomulagi Háskóla Íslands og Alvotech er ætlunin að boða enn frekara samstarf milli aðilanna og verður sérstök nefnd stofnuð til að þróa leiðir til þess. Einnig er stefnt að því sérfræðingar Alvotech komi að kennslu við Háskólann.

Alvotech og Háskóli Íslands hafa starfað náið saman um nokkurt skeið en nýtt hátæknisetur Alvotech var opnað á háskólasvæðinu í júní 2016 innan Vísindagarða Háskóla Íslands. Innan setusins starfa nú um 200 vísindamenn sem vinna að þróun, framleiðslu og markaðssetningu líftæknilyfja. Innan Vísindagarðanna starfar Alvotech í náinni samvinnu við fræðasvið og deildir Háskóla Íslands.

Rasmus Rojkjaer, forstjóri Alvotech, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Róbert Wessman, stofnandi og stjórnarformaður Alvotech við undirritun samningsins í dag.

Róbert Wessman, stofnandi og stjórnarformaður Alvotech sagði ánægjulegt að auka enn frekar samvinnu fyrirtækisins við háskólasamfélagið þar sem aðilar vinni saman að því að móta og þróa menntun fyrir vísindamenn framtíðarinnar. „Það eru mikil forréttindi fyrir þekkingarfyrirtæki eins og Alvotech að vera staðsett innan Vísindagarða HÍ og framundan eru spennandi tímar með auknu samstarfi,“ segir Róbert.

,,Alþjóðlegur lyfjamarkaður er á miklum tímamótum um þessar mundir og Alvotech stefnir að því að vera leiðandi á sínu sviði á næstu árum. Ísland mun áfram gegna mikilvægu hlutverki í framtíðarþróun Alvotech og við höfum nú þegar ráðið til okkar um 200 vísindamenn sem starfa hér á landi. Samhliða auknum umsvifum fyrirtækisins munum við leitast við að ráða enn fleiri sérfræðinga með tækni-, líf- og lyfjavísindabakgrunn og náið samstarf við Háskólann er mikilvægur hluti af þeim framtíðarplönum,“ segir Rasmus Rojkjaer, forstjóri Alvotech

Háskóli Íslands er í fararbroddi íslenskra háskóla,  ekki síst á sviði lyfjavísinda og er skólinn virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísinda- og fræðasamfélagi á því sviði. Háskólinn menntar fólk til áhrifa á öllum sviðum atvinnu- og þjóðlífs og er þannig undirstaða framsækins atvinnulífs og farsæls samfélags.  Háskóli Íslands er í fremstu röð samkvæmt alþjóðlegum mælingum og hefur í sjö ár samfellt raðast meðal 300 bestu háskóla í heimi á matslista Times Higher Education World University Rankings.   Síðustu þrjú ár hefur hann verið meðal 250 hæst metnu háskólanna. Háskóli Íslands er einnig á lista yfir bestu háskóla heims samkvæmt röðun Shanghai Ranking.

""