Skip to main content
10. maí 2023

Háskólalestin í Stykkishólmi 12. og 13. maí – fjör og fræði fyrir alla fjölskylduna 

Háskólalestin í Stykkishólmi 12. og 13. maí – fjör og fræði fyrir alla fjölskylduna  - á vefsíðu Háskóla Íslands

Annar áfangastaður Háskólalestarinnar í maí er Stykkishólmur en þar stoppar lestin með sín fjör og fræði 12. og 13. maí.  

Að venju verður dagskrá lestarinnar fjölbreytt. Haldnar verða kennarasmiðjur og námskeið fyrir grunnskólanemendur og að lokum slegið upp sannkallaðrar vísindaveislu fyrir alla bæjarbúa í Íþróttahúsinu í Stykkishólmi laugardaginn 13. maí kl. 11-15. Þar býðst gestum á öllum aldri að kynnast undrum vísindanna með gangvirkum og lifandi hætti í gegnum fjölbreytt tæki, tól og smiðjur. Það er enginn aðgangseyrir og öll eru hjartanlega velkomin!  

Megináherslan Háskólalestarinnar er að kynna vísindi á lifandi og fjölbreyttan hátt fyrir ungu fólki, styðja við starf grunnskólanna og efla tengsl við landsbyggðina. Í áhöfn lestarinnar eru kennarar og nemendur við Háskóla Íslands sem flestir hverjir starfa einnig sem leiðbeinendur í Vísindasmiðju HÍ og Háskóla unga fólksins.  

Nánar um heimsóknina í Stykkishólm 

Fjölbreyttar kennarasmiðjur verða í boði fimmtudaginn 11.maí fyrir grunnskólakennara í Stykkishólmi, með áherslu á verklega fræðslu, tilraunir og listasmiðju.  

Föstudaginn 12. maí býðst nemendum í 7.-10. bekk Grunnskólans í Stykkishólmi svo að sækja námskeið um allt milli himins og jarðar, m.a. um blaða- og fréttamennsku, efnafræði, töfra ljóss og lita, forritun með skynjurum og föndri, kortagerð á hafi og landi, sjúkraþjálfun og dulkóðun, auk þess sem dularfullur leiðangur verður farinn um ókunnugar slóðir í boði MathBusters - teymi vísindamiðlara frá Noregi, Eistlandi og Íslandi. 

Háskólestin hefur heimsótt um fjórða tug áfangastaða um allt land við miklar vinsældir. Það er því mikið tilhlökkunarefni að hefja ferðina ár hvert en starf lestarinnar er skipulagt í samstarfi við sveitarfélög og skóla hvers áfangastaðar. 

Þess má til gamans geta að Háskólalestin hefur hlotið Vísindamiðlunarverðlaun Rannís fyrir störf sín og að auki hafa bæði Vísindasmiðjan og Háskóli unga fólksins fengið sömu verðlaun.
 

Háskólalestin