Skip to main content
28. apríl 2021

Háskólalestin heldur af stað á ný

Háskólalestin heldur af stað á ný - á vefsíðu Háskóla Íslands

Vorið er komið og það þýðir Háskólest Háskóla Íslands rúllar af stað um landið. Lestin, sem fagnar tíu ára starfsamæli, heimsækir þrjá áfangastaði á landsbyggðinni í maí með skemmtileg námskeið og smiðjur bæði fyrir nemendur og kennara. 

Háskólalestin hefur verið starfrækt frá aldarafmælisári Háskóla Íslands árið 2011 og megináherslan í starfi hennar er á að kynna vísindi á lifandi og fjölbreyttan hátt fyrir ungu fólki, styðja við starf grunnskólanna og efla tengsl við landsmenn á öllum aldri. Í áhöfn Háskólalestarinnar eru kennarar og nemendur við Háskóla Íslands, sem felstir hverjir eru líka leiðbeinendur í Vísindasmiðju HÍ og Háskóla unga fólksins. 

Háskólestin, sem hlotið hefur Vísindamiðlunarverðlaun Rannís, hefur heimsótt hátt á fjórða tug áfangastaða um allt land frá upphafi og fengið einstaklega hlýjar móttökur hvert sem komið er. Það er því alltaf mikið tilhlökkunarefni að hefja ferðina ár hvert en allt starf lestarinnar er skipulagt í nánu samstarfi við sveitarfélög og skóla hvers áfangastaðar. 

Lestin hefur ekki farið varhluta af heimsfaraldrinum mikla. Á liðnu vori var hún alfarið kyrrsett en þessu sinni mótast skipulag hennar að stórum hluta af faraldrinum. Sóttvarnir verða að sjálfsögðu í hávegum hafðar, stefnt er að því að áhöfnin fari í COVID-19-sýnatöku fyrir hverja ferð og hluti af hefðbundinni dagskrá lestarinnar liggur niðri. Ekkert hefur þó verið slegið af metnaðarfullum og einkar áhugaverðum námskeiðum sem í boði verða á hverjum áfangastað.

Sú nýjung verður í Háskólalestinni að þessu sinni að sérstakar kennarasmiðjur verða í boði auk námskeiðanna fyrir unga fólkið. Vísindasmiðja Háskóla Íslands hefur undanfarin ár boðið kennurum í fjölbreyttar smiðjur með áherslu á verklega fræðslu og tilraunir. Mikil eftirspurn hefur verið eftir endurmenntun af þessu tagi og nú verða valdar smiðjur í boði fyrir kennara á landsbyggðinni. Stefnt er á að gera þessa þjónustu að föstum lið í Háskólalestinni.  

Þetta vor heimsækir lestin þrjú sveitarfélög: Húnaþing vestra (13.- 14.maí), Strandabyggð (20.-21.maí) og Fjarðabyggð (27.-28.maí). Grunnskólanemum á aldrinum 12 til 16 ára bjóðast þá námskeið um flest allt milli himins og jarðar því fjallað verður um plánetur og eldfjöll, fornleifar og nýsköpun, félagsmál og samskipti, töfra ljóss og lita, erfðaefni og loftslagsbreytingar, orkuskipti, vindmyllur, efnafræði, forritun og óvenju krassandi næringarfræði.

Nemendur munu meðal annars setja sig í spor Nóbelsverðlaunahafa og kynnast leyndardómum DNA – lyklinum að lífinu, komast að því hvað rannsóknarlögregla og fornleifafræðingur eiga sameiginlegt, læra að búa til gerviblóð fyrir næstu Hrekkjarvöku, kynnast innviðum eldjalla og rafgreiningu vatns, leita lausna við áskorunum samtímans, velta fyrir sér Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og fleira. 

Það má með sanni segja að Háskólalestin fagni 10 ára afmæli sínu eins og vera ber, með fjölbreyttri fræðslu í frábærum félagsskap ungu kynslóðarinnar.  

Áhöfn Háskólalestarinnar