Skip to main content
9. mars 2020

Hagnýt skjalfræði er nýtt diplómanám á framhaldsstigi

Sagnfræði- og heimspekideild mun frá og með háskólaárinu 2020-2021 bjóða upp á diplómanám í skjalfræði á framhaldsstigi en hingað til hefur aðeins verið hægt að taka skjalfræði sem aukagrein á grunnstigi.  Námið verður opið öllum sem lokið hafa BA-, BS- eða B.Ed.-prófi og hentar þeim sem hafa áhuga á að vinna við skjalavörslu og skjalastjórnun, hvort sem er hjá opinberri stofnun, opinberu skjalasafni eða fyrirtæki.

Hagnýt skjalfræði er 30 eininga diplómanám og er miðað við að því sé lokið á einu ári. Í náminu er farið yfir klassískar og nýjar aðferðir við stýringu gagna allt frá því þau verða til og þar til þeim er komið fyrir til varanlegrar geymslu eða eytt. Þá er farið yfir aðgengi að opinberum upplýsingum. Lögð verður áhersla á gildi og notkun gagna sem heimildir til rannsókna. Námið er kennt í lotum og í fjarnámi eins og kostur er. Það gefur starfsfólki í atvinnulífinu meiri möguleika að geta sótt námið.

Nánari upplýsingar um námið má finna hér.