Skip to main content
30. október 2019

Fyrstu klínísku lyfjafræðingarnir brautskrást frá Háskóla Íslands

Klínískir lyfjafræðingar, brautskráning, Háskóli Íslands

Föstudagurinn 25. október markaði tímamót í lyfjafræðinámi á Íslandi þegar fyrstu lyfjafræðingarnir brautskráðust frá Lyfjafræðideild Háskóla Íslands með meistaragráðu í klínískri lyfjafræði. Voru það brautskráningarkandídatarnir María Jóhannsdóttir og Helga Kristinsdóttir sem fyrstar ljúka þessu nýja sérnámi, en um er að ræða launað 90 eininga þriggja ára starfsnám sem fer að mestu fram á Landspítala - háskólasjúkrahúsi.

Námið er samstarfsverkefni Háskóla Íslands og Landspítala og hafa Lyfjafræðideild og spítalinn haft samstarf um kennsluviðmið námsleiðarinnar við University College London og fengið þaðan leiðbeiningar um uppbyggingu og skipulag námsins og þjálfun leiðbeinenda á Íslandi.  Með þessu móti eru gæði námsins tryggð frá upphafi og  er það viðurkennt af Royal Pharmaceutical Society. Að auki gefst nemendum kostur á að sækja tímabundna námsdvöl við háskólasjúkrahús í Bretlandi og breskir nemar koma til Íslands. Royal Pharmaceutical Society og Lyfjafræðingafélag Íslands hafa stutt dyggilega við undirbúning og stofnun námsleiðarinnar.

Klínískir lyfjafræðingar eru vaxandi starfsstétt á Íslandi og hafa rækilega sannað mikilvægi sitt á Landspítala. Markmið klínískrar lyfjafræði er að stuðla að og efla skilvirka og skynsamlega notkun lyfja í heilbrigðiskerfinu. Líkt og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra nefndi í sínu ávarpi eru aukaverkanir lyfja oft orsök sjúkrahúsinnlagnar, valda heilsutjóni og miklum kostnaði fyrir samfélagið. Rannsóknir hafa sýnt að í langflestum tilvikum hefði mátt koma í veg aukaverkun með vandaðri lyfjafræðilegri yfirferð. Því er brýnt að við leitum leiða til að færa þekkingu og færni klínískra lyfjafræðinga út í samfélagið, m.a. í heilsugæslu, hjúkrunar- og öldrunarheimili og ekki síst auka þátt apóteka í því að veita aukna þjónustu til sjúklinga. Á þessum stöðum er markvisst hægt að vinna að því að fyrirbyggja lyfjatengdan vanda hjá sjúklingum. 

Eftirfarandi aðilar héldu ávörp í tilefni dagsins:
Freyja Jónsdóttir, námsbrautarstjóri í sérnámi í klínískri lyfjafræði
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala
Inga Þórsdóttir, forseti Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands
Friðbjörn Sigurðsson, framhaldsmenntunarstjóri í lyflækningum
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra
Elín Soffía Ólafsdóttir, deildarforseti Lyfjafræðideildar Háskóla Íslands

Freyja Jónsdóttir, María Jóhannsdóttir, Helga Kristinsdóttir, Lyfjafræðideild, Háskóli Íslands
María Jóhannsdóttir, Helga Kristinsdóttir, Lyfjafræðideild, Háskóli Íslands