Fyrirlestur og vinnustofa um vísindasiðferði með Mauru Hiney
Vísindasiðfræði og heilindi í rannsóknum eru mikilvæg gildi í starfi háskóla. Það er Háskóla Íslands mikið kappsmál að ýta undir og styrkja þessi gildi á meðal starfsfólks og nemenda. Í því skyni verða haldnar nokkrar málstofur um efnið á næstu mánuðum.
Fyrsta málstofan verður verður þriðjudaginn 5. júní nk. kl. 10-13 á Litla torgi en þá heldur dr. Maura Hiney hjá Rannsóknarráði Írlands fyrirlestur og vinnustofu um efnið. Yfirskrift erindisins er „Research integrity: What it means, why it is important and how we might protect it”.
Á vinnustofunni verður þátttakendum skipt í hópa sem kryfja þekkt viðfangsefni sem fjallað er um í fyrirlestrinum, s.s. höfundarétt, ábyrgð höfunda á vísindagreinum, áskoranir tengdar þverfræðilegu samstarfi þar sem unnið er með viðkvæmar upplýsingar, hæfi og valdatengsl, t.d. á milli doktorsnema og leiðbeinenda og hvernig beri að fyrirbyggja og bregðast við dæmum um óheilindi í rannsóknum.
Sætafjöldi er takmarkaður og því eru áhugasamir beðnir um að skrá sig á viðburðinn.
Dr. Maura Hiney er yfirmaður deildar sem sér um rekstur og þróun rannsóknaverkefna á sviði heilsu hjá Rannsóknarráði Írlands. Hún hefur sérhæft sig í málefnum sem lúta að heilindum og ráðvendni (e. integrity) í vísindum og hefur haldið fjölda fyrirlestra og vinnustofur um málið um árabil.
Dagskrá málstofunnar
10.00-10.10 Opnunarávarp Jóns Atla Benediktssonar rektors
10.10-11.00 Umfjöllun um heilindi í vísindum
11.00-11.20 Kafffihlé
11.20-11.50 Raundæmi (e. Case Study)
11.50-12.00 Stutt hlé
12.00-12.30 Að þróa stefnu um heilindi í vísindum
12.30-13.00 Vinnustofa