Skip to main content
29. maí 2018

Fjölbreytt lokaverkefni kynnt á málþingi meistaranema

Fjölbreyttar rannsóknir á sviði menntavísinda verða kynntar á málþingi meistaranema sem fram fer í Háskóla Íslands miðvikudaginn 30. maí nk. frá kl. 9-15. Þar munu M.Ed.- og MA-nemar sem útskrifast í júní flytja stuttar kynningar á lokaverkefnum sínum.

Um níutíu erindi í 28 málstofum verða flutt á málþinginu og eru viðfangsefnin af ýmsum toga. Meðal þess sem fjallað verður um er líkamsímynd, kynheilbrigði, tvítyngi, heimanám, myndlistarkennslu, núvitund, forréttindahverfi, foreldrafræðslu og margt fleira. Flutt verða erindi bæði á íslensku og ensku. 

Mikill vöxtur hefur verið í framhaldsnámi við Menntavísindasvið undanfarin ár en sviðið menntar kennara fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla, uppeldis- og menntunarfræðinga, íþrótta- og heilsufræðinga, tómstunda- og félagsmálafræðinga og þroskaþjálfa.

Ókeypis er á málþingið og er það öllum opið. 

Dagskrá málþingsins og nánari upplýsingar um einstaka málstofur má finna HÉR.

Viðburðurinn á Facebook