Skip to main content
7. maí 2021

Fjársjóður framtíðar endursýndur á RÚV

Fjársjóður framtíðar endursýndur á RÚV - á vefsíðu Háskóla Íslands

Enn á ný gefst landsmönnum tækifæri til að horfa á verðlaunaþáttaröðina Fjársjóður framtíðar í háskerpu en röðin gefur glögga mynd af rannsóknum vísindamanna Háskóla Íslands á öllum fræðasviðum. Þáttaröðin er endursýnd þessa dagana á RÚV auk þess að vera aðgengileg í spilaranum á RÚV fram á haust. Til viðbótar því er hægt að horfa á röðina eftir þörfum í myndlyklum sjónvarpsstöðvanna.

Fjársjóður framtíðar inniheldur fimm 30 mínútna langa þætti sem sýna vísindafólk skólans að störfum við mjög fjölbreyttar aðstæður en hún þótti skara fram úr öllu öðru framlagi til vísindamiðlunar að mati RANNÍS árið 2018. 

Vísindamenn eru gjarnan knúnir áfram af forvitni sem aldrei verður svalað. Nýjar uppgötvanir kalla á nýjar spurningar í eilífri hringrás þekkingarleitarinnar. Í vísindaþáttaröðinni um Fjársjóð framtíðar er þessi leit einmitt í háskerpu. Ljósi er varpað á fjölbreyttar og spennandi rannsóknir vísindamanna við Háskóla Íslands á ólíkum þáttum sem varða okkur öll, lífríkið og ekki síður umhverfið miklu. Þættirnir verða endursýndir síðdegis á RÚV á miðvikudögum í maí á RÚV.

Eldgos, loftslagbreytingar, hvalir, norðurljós, fuglar og krabbamein

Í fyrsta þættinum er fjallað um rannsóknir vísindamanna við Háskólann á eldgosum og áhrifum þeirra á landið, umhverfið og samfélagið. Þetta eru atriði sem skipta okkur Íslendinga miklu máli enda er mikill fjöldi virkra eldstöðva á Íslandi og áhrifa þeirra getur gætt langt út fyrir landsteina.

Í öðrum þætti Fjársjóðs framtíðar er fylgst með rannsóknum vísindamanna á loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra á jöklana okkar. Einnig er þar fjallað um breytingar á vistkerfum landsins samfara hækkandi hitastigi og hvernig sjálfbærnimenntun getur komið að notum til að auka meðvitund um nauðsyn þess að vernda náttúruna.

Í þriðja þætti er ljósi varpað á rannsóknir vísindamanna okkar á hvölum við Ísland og veiðum á hvölum allt frá landnámstíð fram á vora daga. Einnig er fjallað um Baskavígin, áhrif hvalveiða á ferðamennsku og rannsóknir tengdar norðurljósum kannaðar en þau eru nýleg auðlind í ferðamennsku.

Fjórði þátturinn er allur á lofti enda fjallar hann um fugla. Við fylgjumst með fuglarannsóknum og heyrum og sjáum hvernig breytingar í veðurfari flýta fyrir komu sumra farfugla. Jaðrakan, margæs, himbrimi og haförn eru meðal þeirra tegunda sem sjónum verður beint að í þættinum.

Í lokaþættinum er svo fylgst með rannsóknum vísindamanna við Háskóla Íslands á ýmsum tegundum krabbameins og skoðað t.d. hvaða áhrif umhverfi og mataræði hafi á myndun krabbameina og hvernig leitað sé að lækningu á krabbameini.

Jón Örn Guðbjartsson, sviðsstjóri markaðs- og samskiptasviðs skólans, stýrði upptökum á þáttunum ásamt Birni Gíslasyni en þeir starfa báðir við Háskóla Íslands. Konráð Gylfason sá um handritsgerðina með þeim tveimur og dagskrárgerð auk þess sem hann átti drjúgan hlut í öllu myndefni og setti það saman.

Neðansjávarmyndir og magnaðar skeiðmyndir

Jón Örn Guðbjartsson, sviðsstjóri markaðs- og samskiptasviðs skólans, stýrði upptökum á þáttunum ásamt Birni Gíslasyni en þeir starfa báðir við Háskóla Íslands. Konráð Gylfason sá um handritsgerðina með þeim tveimur og dagskrárgerð auk þess sem hann átti drjúgan hlut í öllu myndefni og setti það saman. Jón Örn er þulur í þáttunum. Einnig fá áhorfendur að njóta einstakra neðansjávarmynda sem Erlendur Bogason tók af vísindamönnum Háskóla Íslands við rannsóknir í Ísafjarðardjúpi. Þá eru magnaðar skeiðmyndir (time laps) í röðinni sem teknar voru af Þorvarði Árnasyni sem kemur reyndar sjálfur við sögu í þáttaröðinni en hann er forstöðumaður rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði. Stefán Drengsson á einnig fjölmörg skot í þáttunum og Óli Haukur Mýrdal tók öll drónaskot. Hljóð var í höndum Birgis Tryggvasonar. 

Vísindamiðlunarverðlaun Rannís

Eins og áður sagði hlaut röðin Vísindamiðlunarverðlaun Rannís árið 2018. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn á mjög fjölsóttri Vísindavöku það ár og í máli hennar kom fram að vísindaröðin um Fjársjóð framtíðar væri eitt viðamesta verkefni sem Háskóli Íslands hefði tekist á hendur til að miðla vísindum til almennings.

Í umsögn Rannís um verðlaunin kom fram að í takt við áherslu Rannís væri vísindafólkið sjálft í forgrunni í þáttaröðinni Fjársjóði framtíðar þar sem það miðlaði rannsóknum sínum til almennings. „Óhætt er að segja að þættirnir hafi frá upphafi vakið gríðarlega athygli og að sú athygli hafi náð langt út fyrir landsteina. Þættirnir hafa verið kynntir sem einstakt verkefni í vísindamiðlun á Evrópuráðstefnu bandalags háskóla og æðri menntastofnanna, á árvissri ráðstefnu EUPRIO, sem er félag samskiptafólks í evrópskum háskólum, á ráðstefnu UNICA, sem er samstarfsnet háskóla í evrópskum höfuðborgum, svo fátt eitt sé talið. Það er álit dómnefndar Rannís að sjónvarpsþáttaröðin Fjársjóður framtíðar sé einstaklega vel að viðurkenningu fyrir vísindamiðlun komið,“ sagði í umsögn Rannís.

Þess má geta að verðlaunaserían er sú þriðja í röðinni sem fjallar um rannsóknir við Háskóla Íslands en fyrsta röðin var sýnd á RÚV árið 2011 og önnur árið 2013 og á Norðurlöndum sama ár. Sú röð keppti um gullverðlaun á einni virtustu vísindakvikmyndahátíð Evrópu, AFO í Tékklandi.

Verðlaunaþáttaröðin var öll tekin upp í ofurskerpu (4K) og var með því allra fyrsta sem þannig hagaði til um í íslensku sjónvarpsefni. Röðin verður sýnd eins og áður sagði á miðvikudagseftirmiðdögum núna í maí kl. 14 á RÚV. 

Nánar um þáttaröðina og rannsóknirnar sem eru til umfjöllunar

Hér má sjá stiklur úr þáttaröðinni

Þættirnir eru í Spilaranum á RÚV

Vísindamenn við Öskju