Skip to main content
3. maí 2018

Fjársjóður framtíðar á RÚV í maí og júní

Vísindamenn eru gjarnan knúnir áfram af forvitni sem aldrei verður svalað. Nýjar uppgötvanir kalla á nýjar spurningar í eilífri hringrás þekkingarleitarinnar. Í nýrri vísindaþáttaröð um Fjársjóð framtíðar er þessi leit einmitt í háskerpu. Ljósi er varpað á fjölbreyttar og spennandi rannsóknir vísindamanna við Háskóla Íslands á ólíkum þáttum sem varða okkur öll og umhverfið miklu. Þættirnir verða sýndir á miðvikudagskvöldum á RÚV núna í maí og byrjun júní.
 
„Markmiðið með þáttunum var að veita sýn á hið fjölbreytta rannsóknastarf sem vísindamenn Háskóla Íslands sinna við afar ólíkar aðstæður. Þættirnir nýju munu ná til vísindarannsókna á öllum fræðasviðum Háskólans,“ segir Jón Örn Guðbjartsson sem stýrði upptökum á þáttunum ásamt Birni Gíslasyni en þeir starfa báðir við Háskóla Íslands.

Í nýju þáttaröðinni er farið víða um land og haf til að fylgjast með metnaðarfullum vísindamönnum að störfum. „Í þetta skiptið er t.a.m. kafað með Ragnari Edvardssyni, fornleifafræðingi við Rannsóknasetur Háskóla Íslands í Bolungarvík, niður að skipsflaki við Dvergasteinsá í Álftafirði. Þar var áður mikil hvalstöð í eigu Norðmanna. Mjög fjölbreyttar rannsóknir eru einmitt í gangi innan háskólans sem tengjast hvölum frá ólíkum sjónarhornum og verður þeim gerð glögg skil í nýju þáttunum,“ segir Björn.Jón Örn segir að einnig sé fylgst með flugi fugla og í röðinni sé farið í arnarhreiður með Gunnari Hallgrímssyni, dósent í dýralíffræði. „Það er líka fylgst með lífsháttum jaðrakana, sem koma æ fyrr til landsins á vorin, flogið með margæs alla leið í nyrstu héruð Kanada auk þess sem farið er upp á hopandi Sólheimajökul með Guðfinnu Aðalgeirsdóttur, prófessor í jöklafræði.“
 
Eldgos og áhrif þeirra á samfélag og umhverfi
Þeir félagar segja að efnið í þáttunum sé afar fjölbreytt þótt nálgunin sé svipuð frá einum þætti til annars, leitast sé við að skoða hvert efni frá mörgum sjónarhornum. „Í fyrsta þættinum sem sýndur verður miðvikudagskvöldið 9. maí fylgjumst við t.d. með rannsóknum vísindamanna við Háskólann á eldgosum og áhrifum þeirra á landið, umhverfið og samfélagið. Þetta eru atriði sem skipta okkur Íslendinga miklu máli enda er mikill fjöldi virkra eldstöðva á Íslandi og áhrifa þeirra getur gætt langt út fyrir landsteina eins og við komumst að í nýju þáttaröðinni,“ segir Jón Örn.

Handrit nýju raðarinnar er unnið af þeim Jóni Erni Guðbjartssyni, Birni Gíslasyni og Konráð Gylfasyni en þeir sjá einnig um dagskrárgerð. Konráð er kvikmyndatökumaður í nýju röðinni.

Loftslagsbreytingar, hvalir, norðurljós, fuglar og krabbamein
Björn segir að í öðrum þætti Fjársjóðs framtíðar sé fylgst með rannsóknum vísindamanna á loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra á jöklana okkar. Einnig sé þar fjallað um breytingar á vistkerfum landsins samfara hækkandi hitastigi og hvernig sjálfbærnimenntun geti komið að notum til að auka meðvitund um nauðsyn þess að vernda náttúruna.

„Í þriðja þætti fylgjumst við svo með rannsóknum vísindamanna okkar á hvölum við Ísland og veiðum á hvölum allt frá landnámstíð fram á vora daga. Við fjöllum einnig um Baskavígin, áhrif hvalveiða á ferðamennsku og skoðum rannsóknir tengdar norðurljósum sem er ný auðlind í ferðamennsku,“ segir Björn.

Jón Örn segir að fjórði þátturinn sé allur á lofti enda fjalli hann um fugla. „Við fylgjumst með fuglarannsóknum og heyrum og sjáum hvernig breytingar í veðurfari flýta fyrir komu sumra farfugla. Jaðrakan, margæs, himbrimi og haförn eru meðal þeirra tegunda sem sjónum verður beint að í þættinum.“

Björn segir að í lokaþættinum sé svo fylgst með rannsóknum vísindamanna við Háskóla Íslands á ýmsum tegundum krabbameins og skoðað t.d. hvaða áhrif umhverfi og mataræði hafi á myndun krabbameina og hvernig leitað sé að lækningu á krabbameini.
 
Neðansjávarmyndir og magnaðar skeiðmyndir
Handrit nýju raðarinnar er unnið af þeim Birni Gíslasyni, Jóni Erni Guðbjartssyni og Konráð Gylfasyni en þeir sjá einnig um dagskrárgerð. Konráð er kvikmyndatökumaður í nýju röðinni en einnig fá áhorfendur að njóta einstakra neðansjávarmynda sem Erlendur Bogason tók af vísindamönnum Háskóla Íslands við rannsóknir í Ísafjarðardjúpi. Þá eru magnaðar skeiðmyndir (time laps) í nýju röðinni sem teknar eru af Þorvarði Árnasyni sem kemur reyndar sjálfur við sögu í þáttaröðinni en hann er forstöðumaður rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði.

Þess má geta að nýja serían er sú þriðja í röðinni en síðasta vísindaþáttaröð um Fjársjóð framtíðar var sýnd á RÚV árið 2013 og á Norðurlöndum sama ár. Sú röð keppti um gullverðlaun á einni virtustu vísindakvikmyndahátíð Evrópu, AFO í Tékklandi.

Nýja þáttaröðin er öll tekin upp í ofurskerpu og verður sýnd á miðvikudagskvöldum í maí klukkan 20:05 á RÚV. 

Nánar um þáttaröðina og rannsóknirnar sem eru til umfjöllunar

Hér má sjá stiklur úr nýju þáttaröðinni

Vísindamenn við rannsóknir