Skip to main content
17. janúar 2018

Fjallað um kvíða í fyrsta erindi nýrrar fundaraðar HÍ

Urður Njarðvík, dósent við Sálfræðideild, fjallar um samspil kvíða og hegðunarvanda barna fimmtudaginn 18. janúar kl. 12-13 í Hátíðasal Háskóla Íslands. Erindið, sem ber heitið „Er þetta ekki bara frekja? Samspil kvíða og hegðunarvanda barna“, er liður nýrri fræðslufundaröð Háskóla Íslands sem nefnist Best fyrir börnin.

Upptaka af erindi Urðar er nú aðgengileg á YouTube-rás Háskólans

Undanfarið hefur mikið verið rætt um kvíða meðal barna og unglinga á Íslandi og skimanir benda til þess að tíðni hans sé að aukast. Í erindinu verður fjallað um birtingarmynd kvíða meðal barna og unglinga og hvernig foreldrar geta tekist á við þennan vanda heima fyrir. Einnig verður rætt um tengsl kvíða við hegðunarvanda, hvernig einkenni kvíða eru oft mistúlkuð sem mótþrói og frekja og hvers vegna börn með ADHD eiga sérstaklega á hættu að þróa með sér kvíðaraskanir.

Fyrirlestur Urðar er sá fyrsti í nýrri fyrirlestraröð sem rektor Háskóla Íslands hleypir af stokkunum á árinu 2018 og ber heitið Háskólinn og samfélagið. Viðfangsefni fyrirlestraraðarinnar verða af ýmsum toga en eiga það sameiginlegt að hafa verið áberandi í samfélagsumræðunni síðustu misseri. Í fyrstu fræðslufundaröðinni, sem ber heitið Best fyrir börnin, verður velferð barna og ungmenna í brennidepli, með áherslu á andlega líðan, hreyfingu, svefn, læsi, snjallsímanotkun, mataræði og samskipti.

Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. 

Nánari upplýsingar um fundaröðina er að finna á vefsvæði hennar.
 

Urður Njarðvík