Skip to main content
11. maí 2020

Finndu þína grunnnámsleið í fjarkynningu á netinu

Háskóli Íslands kynnnir hátt í hundrað spennandi námsleiðir í grunnnámi í beinni útsendingu á netinu dagana 15.-19. maí nk. þar sem áhorfendum gefst m.a. kostur á að spyrja nánar út í námið. Umsóknarfrestur um grunnnám hefur verið framlengdur til 15. júní vegna áhrifa COVID-19 faraldursins.

Háskólinn stóð fyrir sams konar fjarkynningum á framhaldsnámi í aprílmánuði sem voru feikivel sóttar á netinu en með þessu er skólinn að bregðast við ástandinu í samfélaginu þar sem enn eru hömlur á samskiptum fólks og atvinnuleysi hefur aukist umtalsvert. Skólinn vill þannig taka þátt í að milda efnahagsþrengingar á Íslandi samhliða því að mennta fólk til nýrra áskorana.

Fjarkynningarnar gera öllum kleift að kynna sér vel ríkulegt framboð skólans í grunnnámi án þess að þurfa að víkja frá tölvunni eða smátækinu. Sérfræðingar námsleiða, deilda og fræðasviða Háskólans leiða kynningarnar og veita ítarlegar upplýsingar um samsetningu hverrar námsleiðar, inntökuskilyrði, fyrirkomulag lokaverkefna, möguleika á atvinnu og framhaldsnámi og margt fleira.  Þá verður hægt að senda inn spurningar í netspjalli um leið og kynningin fer fram.  

Kynningarnar fara fram dagana 15.-19. maí milli kl. 9 og 17 og verða með þessum hætti:
•    Félagsvísindasvið 15. maí
•    Heilbrigðisvísindasvið 15. maí
•    Hugvísindasvið 15. og 18. maí
•    Menntavísindasvið 18. og 19. maí 
•    Verkfræði- og náttúruvísindasvið 19. maí

Ítarleg dagskrá kynninganna er hér

Auk fjarkynninga á grunnnámi mun Inga Berg, náms- og starfsráðgjafi hjá Háskóla Íslands, fara yfir gagnlegar leiðir til að taka skynsamlega ákvörðun um námsval í sérstöku erindi í lok dags 15. maí, nánar tiltekið kl. 16.40. Þar á eftir mun Sigurður Smári Davíðsson, nemandi við Háskóla Íslands, segja áhorfendum frá ýmsu er varðar skólann, t.d. möguleikum í skiptinámi, sérsniðnum lausnum fyrir námsmenn, hvernig félagslífið er og margt fleira. 

Á vef skólans um grunnnám má skoða allar námsleiðirnar en þar eru líka gagnlegir tenglar sem stutt geta við ákvörðun um nám, þar á meðal námsvalshjólið sem veitir upplýsingar um námsleiðir út frá áhugasviði fólks.

Einnig geta áhugasöm haft samband við Náms- og starfsráðgjöf skólans alla virka daga frá kl.  9 til 12 og frá 13 til 16 í síma 525-4315. Það er líka hægt að ræða við náms- og starfsráðgjafa í netspjallinu sem er aðgengilegt á heimasíðu skólans og svo er líka mögulegt að senda fyrirspurnir á netfangið radgjof@hi.is 
 

nemendur í háskólanum