Skip to main content
6. febrúar 2019

Fengu Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands fyrir algrími sem finnur örvökur

""

Tveir nemendur við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands, þeir Heiðar Már Þráinsson og Róbert Ingi Huldarson, hljóta Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands ásamt þeim Eysteini Gunnlaugssyni, meistaranema í tölvunarfræði við Kungliga Tekniska Högskolan í Svíþjóð, og Hönnu Ragnarsdóttur, nema við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhenti þeim verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag.

Fjórmenningarnir hljóta verðlaunin fyrir nýsköpunarverkefnið „Þróun á algrími til að finna örvökur í sofandi einstaklingum með því að skoða önnur lífmerki en heilarit og sannprófun á aðferð til að greina orsakir kæfisvefns með stóru gagnasafni“ sem þau unnu fyrir tilstyrk Nýsköpunarsjóðs námsmanna sumarið 2018. Leiðbeinendur þeirra voru Halla Helgadóttir og Jón Skírnir Ágústsson, yfirmenn á rannsóknarsviði Nox Medical.

„Verkefnið fól í sér þróun á nýrri sjálfvirkri greiningaraðferð, sem byggist á gervigreind, til að finna örvökur í svefni. Örvökur eru stutt tímabil í svefni sem einkennast af breytingu í heilavirkni, og er greining þeirra mikilvæg til að meta svefngæði og svefntengda sjúkdóma. Í hefðbundinni svefnrannsókn eru tekin upp ýmis lífmerki og eru þau greind af sérfræðingi til að finna meðal annars örvökur. Þetta ferli er bæði tímafrekt og ónákvæmt og eru því sjálfvirkar greiningar afar mikilvægar til að spara tíma og auka nákvæmni. Sjálfvirk greining á örvökum er sérstaklega erfið þar sem einkenni örvaka geta verið ólík milli einstaklinga og töluvert ósamræmi er í greiningum sérfræðinga. Einnig eru örvökur stuttir atburðir og lítill hluti af heildar svefni, sem gerir gervigreindar aðferðum erfitt fyrir að læra einkenni þeirra. Einhverjar rannsóknir hafa verið gerðar á sjálfvirkri greiningu örvaka með misgóðum árangri, en vandamálið er í raun enn illa leyst. Því til stuðnings má nefna að PhysioNet, sem sér um að halda árlegar keppnir í gagnavinnslu, ákvað að verkefni keppninnar í ár væri sjálfvirk greining á örvökum, en verkefnin sem eru valin eru alltaf klínískt mikilvæg og annaðhvort óleyst eða torleyst. Sjálfvirka greiningaraðferðin okkar felur í sér að vinna úr lífmerkjum, svo sem  öndunarmerkjum og heilalínuriti, og reikna úr þeim ýmsa tölfræðilega eiginleika. Endurtækt
gervitauganet var þróað og þjálfað til þess að spá fyrir um örvökusvæði út frá útreiknuðu einkennunum. Algrímið var þróað og prófað á tveimur gagnasöfnum, annars vegar opnu gagnasafni frá Physionet, og hins vegar á gagnasafni frá Nox Medical. Niðurstöður voru hvetjandi, en aðferðin okkar lenti í öðru sæti í alþjóðlegu PhysioNet keppninni, en meðal keppenda voru lið frá helstu háskólum heims, sem og fyrirtækjum eins og Philips. Algrímið virkar einnig vel á gögn Nox Medical, nákvæmni sjálfvirku greiningarinnar er sambærileg og nákvæmni milli sérfræðinga, en sjálfvirka aðferðin skilar niðurstöðum mun hraðar," segir í fréttatilkynningu frá Rannís.

Þess má geta að Heiðar Már lauk BS-prófi í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands vorið 2018 en Róbert Ingi leggur nú stund á hugbúnaðarverkfræði við skólann. 

Fjögur önnur öndvegisverkefni voru tilnefnd til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands og voru þau öll unnin af nemendum við Háskóla Íslands. Þetta eru verkefnin „Áhættureiknir fyrir bráðar endurinnlagnir sjúklinga á legudeildir geðsviðs Landspítala“, „Hlutverk heilahimnumastfrumna í mígreni“, „Hugbúnaður til aðstoðar við röðun skurðaðgerða“ og „Nýjar leiðir í innleiðingaferli stefnumótunar við eflingu máls og læsis á frístundaheimilum“.

Lesa má um þau á vef Háskóla Íslands

Um verðlaunin
Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands eru veitt árlega þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefnis sem styrkt var af Nýsköpunarsjóði námsmanna sumarið áður. Verðlaunin voru fyrst veitt 1996 og eru því nú veitt í tuttugasta og fjórða sinn. Verðlaunin í ár eru Urban Nomad vegghillur eftir Jón Helga Hólmgeirsson vöruhönnuð.

Verðlaunahafar við afhendingu Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands á Bessastöðum í dag. Frá vinstri: Eysteinn Gunnlaugsson, Heiðar Már Þráinsson, Hanna Ragnarsdóttir og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands. Á myndina vantar Róbert Inga Huldarson. MYND/Rannís
Fimm öndvegisverkefni voru tilnefnd til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands og fengu aðstandendur þeirra viðurkenningu við athöfnina í dag. MYND/Rannís