Skip to main content
12. júlí 2018

Erlendir nemar boðnir velkomnir

Kynningardagar fyrir erlenda nemendur við Háskóla Íslands verða haldnir dagana 22.-24. ágúst nk. Markmið daganna er að kynna þjónustu Háskólans og styðja nemendur í að aðlagast nýrri menningu og kynnast öðrum nemendum. Á dagskrá eru spennandi námskeið, skipulagðar gönguferðir um háskólasvæðið, móttaka með tónlist og léttum veitingum, kynningar fræðasviða og viðburðir á vegum Stúdentaráðs.  

Náms- og starfsráðgjöf býður upp á námskeiðið The Keys to Success at the University of Iceland þar sem nemendur fá leiðbeiningar um hvernig vænlegast sé að ná árangri í námi við Háskólann og njóta dvalarinnar á Íslandi.  Þá geta áhugasamir nemendur tekið þátt í örnámskeiði í íslensku, Icelandic in 90 minutes. Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn verður auk þess með kynningar á safninu og þjónustu þess. 

Á fimmtudeginum 23. ágúst verður öllum erlendum nemendum boðið til móttöku á Háskólatorgi þar sem rektor flytur ávarp. Alþjóðanefnd Stúdentaráðs býður upp á gönguferðir um háskólasvæðið, boðið verður upp á grillaðar pylsur og tónlist. Dagskráin heldur svo áfram í Stúdentakjallaranum.

Kynningar fræðasviða eru einnig hluti af dagskrá kynningardaganna en tímasetningar á þeim ásamt öðrum viðburðum má sjá á yfirliti yfir dagskrána.