Skip to main content
6. nóvember 2019

Doktorsritgerð um samkynja langanir í skáldverkum Elíasar Mars

Ásta Kristín Benediktsdóttir hefur varið doktorsritgerð við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands og School of English, Drama and Film við University College í Dublin. Ritgerðin er skrifuð á sviði íslenskra bókmennta og nefnist Facing the Heartbeat of the World. Elías Mar, Queer Performativity and Queer Modernism. Andmælendur voru Heike Bauer, prófessor við Birkbeck, Háskólanum í Lundúnum, og Dag Heede, lektor við Háskólann í Suður-Danmörku. Ritgerðin var unnin undir leiðsögn Bergljótar Kristjánsdóttur, prófessors í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands, og Anne Mulhall, lektors við University College í Dublin. Aðrir í doktorsnefnd voru Dagný Kristjánsdóttir, prófessor emerita við Háskóla Íslands, og Sharae Deckard, lektor við University College í Dublin. Torfi Tulinius, forseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnaði athöfninni sem fór fram í Öskju föstudaginn 1. nóvember.

Um rannsóknina

Í ritgerðinni er fjallað um rithöfundinn Elías Mar (1924-2007) og samkynja langanir í skáldverkum hans frá fimmta áratug 20. aldar, skáldsögunum Eftir örstuttan leik (1946), Man eg þig löngum (1949) og Vögguvísu (1950) auk ýmissa útgefinna og óútgefinna texta frá fyrstu höfundarárum Elíasar. Verkin eru greind frá hinsegin sjónarhorni og sett í sögulegt samhengi auk þess sem þau eru notuð til að varpa ljósi á líf Elíasar sem tvíkynhneigðs rithöfundar á þessum árum. Færð eru rök fyrir því að ritun og útgáfa bókanna hafi haft veruleg áhrif á mótun sjálfsmyndar Elíasar og að í augum hans og sögupersóna hans hafi listræn reynsla og tjáning verið mikilvægur hluti af því að vera hinsegin. Hluti af ritgerðinni er söguleg rannsókn á því hvernig kynvilla eða samkynhneigð varð hluti af opinberri orðræðu á Íslandi á fyrri hluta 20. aldar og hver hlutur Elíasar var í því ferli. Hann lagði mikla áherslu á að skrifa „aktúelar“ bækur sem tækjust á virkan hátt á við samtímann og í ritgerðinni er því haldið fram að líta megi á þetta viðhorf og birtingarmyndir þess í verkunum sem hinsegin módernisma – viðbragð Elíasar við því að vera í kynferðislegri jaðarstöðu á Íslandi um miðja 20. öld.

Doktorsefnið

Ásta Kristín Benediktsdóttir (f. 1982) er íslenskufræðingur með MA í íslenskum bókmenntum frá Háskóla Íslands (2010). Hún starfar nú sem stundakennari við sama skóla, prófarkalesari og sjálfstætt starfandi fræðimaður hjá ReykjavíkurAkademíunni.

Hér er hægt að skoða myndir frá doktorsvörninni.

Dag Heede, Ásta Kristín Benediktsdóttir, Heike Bauer og Torfi Tulinius.