Skip to main content
28. september 2020

Baðstofan – Hlaðvarp í sagnfræði

Baðstofan – Hlaðvarp í sagnfræði - á vefsíðu Háskóla Íslands

Nýtt hlaðvarp, Baðstofan, hefur hafið göngu sína í sagnfræði við Háskóla Islands og er það í umsjón þriggja nemenda í BA-námi, Steinunnar Sigþrúðardóttur Jónsdóttur, Þórhildar Elísabetar Þórsdóttur og Bergdísar Klöru Marshall. Verkefnið er liður í átaki Sagnfræðistofnunar til að skapa nýstárlegan vettvang fyrir miðlun sagnfræði til almennings með áherslu á lifandi og aðgengilega umfjöllun.

Í hlaðvarpinu er fjallað um rannsóknir kennara og nemenda  og leitast við að tengja þær við áleitin samtímamálefni. Þættirnir eru þrettán talsins og skiptast í nokkur efni. Í fyrstu fimm þáttunum er rætt við sagnfræðinga um rannsóknaraðferðir og nokkur mikilvæg svið sagnfræðinnar. Næstu fjórir þættir fjalla um verkefni nemenda, aðallega doktorsnema sem eru mislangt komnir í rannsóknum sínum. Þá koma tveir þættir um útgáfu sagnfræðilegs efnis og er horft á málin bæði frá sjónarhorni ritstjóra og höfunda. Að lokum eru tveir þættir þar sem rætt er um hvernig sögulegir viðburðir geta varpað ljósi á áleitin samtímamálefni á borð við COVID-19 og popúlisma.

Þættirnir verða fluttir á næstu vikum og er sá fyrsti þeirra þegar kominn í loftið. Fjallar hann um tilfinningasögu og er þar rætt við Sigurð Gylfa Magnússon, prófessor í sagnfræði.

Hlaðvarpinu er miðlað á flestum helstu streymisveitum, Spotify og Apple-Podcast-veitunni, svo og á Facebook-síðu og vefsíðu Sagnfræðistofnunnar. Hægt er að finna þættina á Spotify undir nöfnunum „Baðstofan“ eða „Tilfinningasaga“.

Verkefnið var unnið með styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna sumarið 2020. Umsjónarmenn þess eru Guðmundur Jónsson, forstöðumaður Sagnfræðistofnunnar, Sigurður Gylfi Magnússon prófessor og Sumarliði Ísleifsson, lektor í hagnýtri menningarmiðlun.

"Baðstofan, nýtt hlaðvarp um sagnfræði"