Skip to main content
13. febrúar 2017

Auknir möguleikar til skiptináms í Suður-Kóreu

Nemendum við Háskóla Íslands opnast auknir möguleikar til skiptináms í Suður-Kóreu með nýjum samstarfssamningi um stúdentaskipti sem skólinn hefur gert við Korea University. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Jaeho Yeom, rektor Korea University, undirrituðu samninginn í Háskóla Íslands í síðustu viku.

Korea University er einkaháskóli með bækistöðvar bæði í Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu, og stjórnsýsluborginni Sejong um 70 km frá höfuðborginni. Auk þess tilheyra þrjú sjúkrahús skólanum. Nemendafjöldi er nærri 36.000 og þar af eru um 4.000 alþjóðlegir nemendur. Háskólinn er virtur á alþjóðavettvangi og er m.a. í 98. sæti á hinum þekkta QS-lista yfir bestu háskóla heims. 

Vaxandi áhuga hefur gætt meðal nemenda Háskóla Íslands á skipitnámi í Suður-Kóreu í ýmsum námsgreinum en Háskólinn er þegar með samning við einn skóla þar í landi, Sungkyunkwan University í Seúl. Þrír nemar í Háskóla Íslands dvelja þar í skiptinámi í vetur. Með hinum nýja samningi við Korea University opnast fleiri möguleikar fyrir nemendur Háskóla Íslands á skiptinámi í Suður-Kóreu en Korea University býður upp á fjölbreytt námsframboð á ensku eins og sjá má á heimasíðu skólans.

Eins og fyrr segir kom rektor Korea University, Jaeho Yeom, sérstaklega hingað til lands til þess að undirrita samning um stúdentaskipti við Háskóla Íslands en með honum í för var Sunhyuk Kim, prófessor og aðstoðarrektor alþjóðasamskipta skólans. 

Nemendur Háskóla Íslands geta sótt um skiptinám við Korea University frá og með upphafi árs 2018. 

Jaeho Yeom, rektor Korea University, og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands.
Hafliði Sævarsson, verkefnisstjóri á Skrifstofu alþjóðasamskipta, Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, aðstoðarrektor vísinda, Jaeho Yeom, rektor Korea University, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, Friðrika Harðardóttir, forstöðumaður Skrifstofu alþjóðasamskipta, Steinunn Gestsdóttir, aðstoðarrektor kennslu og þróunar, og Sunhyuk Kim, prófessor og aðstoðarrektor alþjóðasamskipta við Korea University.