Skip to main content
28. nóvember 2019

Áframhaldandi samstarf við Landmælingar um fjarkönnun

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Eydís Líndal Finnbogadóttir, forstjóri Landmælinga Íslands, endurnýjuðu á dögunum samning um samstarf stofnanna um fjarkönnunarrannsóknir á Íslandi.

Fjarkönnun felst m.a. í myndatöku úr gervitunglum, flugvélum og drónum og að vinna úr þeim upplýsingar um yfirborð jarðarinnar, svo sem um breytingar á lífríki, hopun jökla og áhrif eldgosa á landslag.

Í samningnum felst m.a. að Háskóli Íslands verður aðili að fjarkönnunarstarfsemi hjá Landmælingum Íslands og að stofnanirnar tvær skiptast á fjarkönnunargögnum. Einnig munu stúdentar við Háskóla Íslands geta stundað nám í fjarkönnun í nánu samstarfi við Landmælingar Íslands.

Dr. Kolbeinn Árnason, sérfræðingur sem starfar við fjarkönnun hjá Landmælingum Íslands, verður sameiginlegur starfsmaður stofnananna tveggja með aðsetur hjá Landmælingum en starfsaðstöðu við Verkfræðistofnun Háskóla Íslands.

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Eydís Líndal Finnbogadóttir, forstjóri Landmælinga Íslands, handsala endurnýjaðan samstarfssamning stofnananna.
Jón Atli og Eydís ásamt þeim Kolbeini Árnasyni, sameiginlegum starfsmanni stofnananna, og Sigurði Magnúsi Garðarssyni, forseta Verkfræði- og náttúruvísindasviðs.