Skip to main content
19. júní 2018

Áfallastreituröskun tengd auknum líkum á sjálfsónæmissjúkdómum

Ný rannsókn vísindamanna við Háskóla Íslands og Karolinska Institutet í Stokkhólmi sýnir að fólk sem glímt hefur við áfallastreituröskun er í aukinni áhættu á að greinast síðar með sjálfsónæmissjúkdóma. Niðurstöður rannsóknarinnar birtast í dag í hinu virta vísindatímariti ameríska læknafélagsins, Journal of the American Medical Association (JAMA). 

Rannsóknin byggist á sænskum heilsufarsgagnagrunnum en á rannsóknartímabilinu, sem spannaði yfir 30 ár, voru yfir 100 þúsund einstaklingar greindir með áfallastreituröskun eða aðrar raskanir tengdum áföllum eða þungbærri lífsreynslu. Áhætta þessara einstaklinga á að greinast síðar með sjálfsónæmissjúkdóma var borin saman við alsystkini þeirra og óskylda einstaklinga af sama aldri og kyni. 

Niðurstöðurnar leiddu í ljós að einstaklingar með áfallastreitu- eða aðrar tengdar raskanir voru að meðaltali 30-40% líklegri til þess að greinast síðar með einhvern af þeim 41 sjálfsónæmissjúkdómum sem rannsakaðir voru, þar á meðal sykursýki af tegund 1, lúpus, MS-, Addisson- og Crohns-sjúkdóm. Að auki kom í ljós að áhættan á sjálfsónæmissjúkdómum virtist meiri því yngri sem einstaklingarnir voru við greiningu á áfallatengdum röskunum.

Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands, og Huan Song, nýdoktor við sömu deild, fara fyrir rannsókninni sem greint er frá í JAMA. Þær segja niðurstöðurnar mikilvægan áfanga í að auka þekkingu á áhrifum áfalla og áfallastreitu á þróun sjálfsónæmissjúkdóma. „Við vitum frá fyrri rannsóknum að mikil streita getur raskað ónæmiskerfi okkar en þetta er í fyrsta sinn sem sýnt er fram á tengsl áfallastreitu- og tengdra raskana við áhættu á sjálfsónæmissjúkdómum í stóru almennu þýði fólks. Fyrri rannsóknir á þessu sviði byggjast flestar á athugunum á bandarískum hermönnum, s.s. aðallega karlmönnum með ákveðnar tegundir áfalla að baki. Þær höfðu einnig ýmsa aðferðafræðilega annmarka sem við höfðum tök á að komast hjá í þessari greiningu okkar. Við þurfum hins vegar frekari rannsóknir á þessu efni og er stóra rannsóknin okkar hér á

landi, Áfallasaga kvenna, mikilvægur liður í því samhengi,“ segir Unnur.

Kynningarfundur um niðurstöður rannsóknarinnar verður haldin í Tjarnarsal Íslenskrar erfðagreiningar föstudaginn 22. júní kl. 12.00.

Tengill á rannsóknina í JAMA 

Unnur Anna Valdimarsdóttir og Huan Song