Skip to main content
18. júní 2018

114 kandídatar brautskráðir frá Endurmenntun HÍ

Brautskráning Endurmenntunar Háskóla Íslands fór fram við hátíðlega athöfn í Háskólabíói síðastliðinn föstudag, 15. júní. 114 kandídatar brautskráðust af fjórum námsbrautum, jákvæðri sálfræði – diplómanámi á meistarastigi, leiðsögunámi á háskólastigi, fjölskyldumeðferð – diplómanámi á meistarastigi og námi til löggildingar fasteigna- og skipasala.

Nýsköpun og kjarkur
Kristín Jónsdóttir Njarðvík endurmenntunarstjóri flutti ávarp við upphaf athafnarinnar og þakkaði útskriftarnemum fyrir samfylgdina. Námsbrautum Endurmenntunar hefur fjölgað á síðustu árum og aðsókn aukist til muna enda metnaður lagður í nýsköpun og að námsframboð endurspegli þarfir samfélagsins á hverjum tíma.

Hátíðarræðu flutti Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands. Í máli hans kom meðal annars fram að Endurmenntun Háskóla Íslands væri í forystu í nýsköpun menntunar og fræðslu fyrir fullorðna, en tæpur fjórðungur fullorðinna landsmanna stundar símenntun af einhverju tagi og eflir þannig möguleika sína í starfi og einkalífi.

Sigríður Lára Haraldsdóttir, kandídat úr fjölskyldumeðferð – diplómanámi á meistarastigi, flutti ávarp fyrir hönd nemenda. Hún lagði áherslu á mikilvægi þess að njóta lífsins – vera kjarkmikil, fylgja draumum sínum og láta hjartað ráða för. 

Háskóli Íslands sendir útskriftarnemum úr Endurmenntun skólans innilegar hamingjuóskir með áfangann og óskar þeim velfarnaðar í framtíðinni.

Frá brautskráningu Endurmenntunar Háskóla Íslands