
Starfsemi Lagadeildar fer að mestu leiti fram í Lögbergi. Stjórnsýsla deildarinnar er á 1. hæð í Gimli.
Stór hluti kennslu Lagadeildar fer fram í Lögbergi og þar er einnig sérstakt bókasafn Lagadeildar og lesstofa sem er ætluð fyrir laganema.
Kennsla í námskeiðum deildarinnar fer einnig fram í öðrum byggingum háskólans, svo sem Odda og Háskólatorgi. Aðrar deildir Háskólans hafa ennfremur aðgang að kennslustofum í Lögbergi.
Skrifstofur Lagadeildar eru á 1. hæð í Gimli við Sæmundargötu
Nemendaþjónusta Félagsvísindasviðs er á Þjónustutorgi í Gimli
Netfang: nemFVS@hi.is
Opið virka daga frá 9 - 15
Sími: 525 4500
Húsnæði Lögbergs skiptist þannig:
Kjallari - Skrifstofur og bóksala Úlfljóts og Bókaútgáfa Orators
1. hæð - Þrjár kennslustofur, 101, 102 og 103 og tengigangur við Gimli
2. hæð - Lesstofa, herbergi Orators, Dómssalur og þrjár kennslustofur 201, 204 og 205
3. hæð - Bókasafn Lagadeildar, lesstofa, rannsóknarstofa og sex kennaraherbergi
4. hæð -Kennarastofa, fundarherbergi, skrifstofa Lagastofnunar og tíu kennaraherbergi