
Enskukennsla
MA gráða
MA-nám í enskukennslu er 120 eininga nám sem veitir í senn meistaragráðu og réttindi til kennslu í ensku á framhaldsskólastigi.

Um námið
Þetta er starfsmiðað nám sem ætlað er jafnt starfandi kennurum og þeim sem hyggja á kennslu í ensku í framhaldsskólum.
Umsækjendur um þessa námsleið athugið:
Á rafrænu umsóknareyðublaði skal velja Menntun framhaldsskólakennara, MA, 120 einingar, og kjörsviðið >Enskukennsla.
BA-próf í ensku eða B.Ed.-próf með 1. einkunn veitir aðgang að MA-námi. Skilyrði er að hafa skrifað lokaritgerð í BA-/B.Ed-náminu.
Þeir sem hafa lokið B.Ed.-prófi þurfa þó að ljúka undirbúningsnámi á BA-stigi áður en þeir hefja nám á MA-stigi. Þeir sem höfðu tungumálið sem kjörsvið þurfa að jafnaði að taka allt fyrsta árið í BA í ensku, mínus DET-námskeiðin tvö en skrifa BA-ritgerð í ensku. Þeir sem höfðu ekki tungumálið sem kjörsvið taka að jafnaði 120 einingar í BA-náminu í ensku, taka ekki DET-námskeiðin tvö en skrifa BA-ritgerð.