
Eðlisfræði
120 einingar - MS gráða
. . .
Námið er tveggja ára fræðilegt og verklegt rannsóknatengt framhaldsnám í eðlisfræði.
Námið er 120 einingar og er fullgilt próf til prófgráðunnar magister scientiarum, MS.
Námið
Fyrir nemendur
Viltu vita meira?

Um námið
Í boði eru tvö kjörsvið
Kennileg eðlisfræði
Í náminu öðlast nemendur:
- Breiða þekkingu á fræðilegri eðlisfræði á framhaldsnámsstigi
- Sérhæfða þekkingu á samtímarannsóknum í eðlisfræði þar sem megin sviðin eru stjarneðlisfræði, þéttefnisfræði og kennileg öreindafræði
- Þjálfun í stærðfræðilegum, tölulegum og tölfræðilegum aðferðum
Námið samanstendur af 60 ECTS í námskeiðum og 60 ECTS rannsóknamiðuðu meistaraverkefni.
Hvoru tveggja er unnið í samstarfi við Nordita, framúrskarandi alþjóðlegrar rannsóknastofnunar í kennilegri eðlisfræði.
Ýmsir möguleikar eru á styrkjum fyrir nemendur vegna vinnu við rannsóknarverkefni.

Almenn eðlisfræði
Meistaraverkefni er 60 eða 90 einingar og námskeið eða annað nám eru 60 eða 30 einingar.
Ýmsir möguleikar eru á styrkjum fyrir nemendur vegna vinnu við rannsóknarverkefni.
- Fyrsta háskólagráða, BS-próf, með lágmarkseinkunn 6,5. Auk þess geta verið forkröfur/undirbúningsnámskeið sem verður að ljúka áður en hægt er að hefja meistaranám. Samþykkt í meistaranám er háð því hvort leiðbeinandi finnist meðal fastra kennara námsleiðar.
- Umsækjendur skulu skila stuttri greinargerð (1 bls.) þar sem þeir tilgreina hvers vegna þeir hafa áhuga á þessu námi, markmið með náminu og hugsanlegt viðfangsefni í meistararitgerð.
- Öllum umsóknum skulu fylgja meðmæli frá 2 einstaklingum (kennari/yfirmaður) sem þekkja vel til umsækjenda og geta veitt honum skýra umsögn. Umsagnaraðilar þurfa að skila skriflegum umsögnum beint til Háskóla Íslands á netfangið umsokn@hi.is. Ef nemandi er að sækja um áframhaldandi nám í sömu deild þarf ekki að skila skriflegum umsögnum/meðmælabréfum.