
Alþjóðasamskipti
30 einingar - Viðbótardiplóma
Umfang alþjóðasamskipta og þátttaka Íslands í starfi alþjóðastofnana og -samtaka hefur vaxið mjög á undanförnum árum og kallar á aukinn fjölda fólks með þekkingu á hinum ýmsu sviðum alþjóðasamskipta. Náminu er ætlað að mæta vaxandi þörf í samfélaginu fyrir vel menntað starfsfólk með þekkingu á alþjóðasamskiptum hvort sem er í fyrirtækjum, hagsmunasamtökum, opinberum stofnunum eða sveitarfélögum.

Námið
Diplóma í alþjóðasamskiptum er hagnýt 30 eininga námsleið fyrir þá sem lokið hafa BA- eða BS-námi í einhverri grein. Skyldunámskeið eru 12e eða 18e og fer eftir því hvort nemendur hafa BA-próf í stjórnmálafræði eða í öðrum greinum. Nemendur sem koma úr öðrum greinum en stjórnmálafræði taka námskeiðið ASK105F Alþjóðasamvinna og staða Íslands í alþjóðakerfinu (6e).
BA-, B.Ed.- eða BS-próf eða sambærilegt próf. Erlendir umsækjendur, sem ekki hafa ensku að móðurmáli, þurfa að sýna fram á góða þekkingu á enskri tungu (TOEFL 79, IELTS 6.5).