
Þjóðmálastofnun og EDDA - öndvegissetur standa fyrir fyrirlestraröðinni "Eilífðarvélin - Fyrirlestraröð um frjálshyggjuna" í tengslum við útgáfu bókarinnar Eilífðarvélin. Uppgjör við frjálshyggjuna.
Föstudaginn 17. september mun Dr. Helga Dittmar flytja erindið "What is the price of consumer culture?". Í erindinu mun Helga gefa yfirlit yfir rannsóknir á afleiðingum efnishyggju og greina frá fyrstu niðurstöðum allsherjargreiningar (Meta-analysis) á áhrifum efnishyggju á velferð fólks í víðu samhengi. Rannsóknir hafa ítrekað sýnt að efnishyggja tengist vanlíðan fólks en sambandið er missterkt eftir rannsóknum. Heildargreining getur varpað ljósi á það hvaða þættir hafa áhrif á styrkleika sambandsins. Niðurstöður heildargreiningarinnar sýna meðal annars að efnishyggja tengist verri líðan, verri heilsu og verri námsárangri og að þessi tengsl eru sterkari hjá tilteknum þjóðfélagshópum, sér í lagi hjá tekjulágum.
Dr. Helga Dittmar er dósent í sálfræði við Sussex Háskóla. Helga er þekkt á alþjóðavettvangi sem sérfræðingur í félagssálfræði neyslusamfélaga og tengslum þeirra við vellíðan og auðkenni (identity) fólks. Rannsóknir hennar til rúmlega tuttugu ára eru dregnar saman í bókinni Consumer Culture, Identity and Well-Being, sem gefin er út í ritröðinni European Monographs in Social Psychology. Helga hefur átt samstarf með íslenskum fræðimönnum á þessu sviði frá árinu 2002.
