Vísindi á laugardegi - Göngum saman í leit að lækningu á brjóstakrabbameini

Hvenær hefst þessi viðburður: 
4. febrúar 2012 - 13:00

Styrktarfélagið Göngum saman hefur fengið rannsóknahópa sem þegið hafa styrki frá félaginu til að taka þátt í röð fræðslufunda fyrir almenning undir heitinu Vísindi á laugardegi - Göngum saman í leit að lækningu á brjóstakrabbameini.
 
Fyrsti fundurinn verður haldinn laugardaginn 4. febrúar kl. 13 en þá tekur rannsóknahópur Jórunnar Erlu Eyfjörð prófessors við Læknadeild Háskóla Íslands á móti gestum í Læknagarði og segir frá tengslum grunnrannsókna á brjóstakrabbameini við meðferð og horfur. Einnig verður gestum boðið að skoða aðstöðu rannsóknarhópsins.

____________

Nánari upplýsingar:

Styrktarfélagið Göngum saman sem stofnað var árið 2007 stendur á næstunni fyrir fræðslufundum fyrir almenning um gildi rannsókna sem beinast að því  að skilja eðli og uppruna brjóstakrabbameins. Félagið hefur það að markmiði að afla fjár í styrktarsjóð þess og styrkja íslenskt vísindafólk sem stundar rannsóknir á brjóstakrabbameini. Frá upphafi hefur félagið veitt rúmlega 22 milljónir til framhaldsnema við Háskóla Íslands og annarra vísindamanna á þessu sviði.

Göngum saman hefur fengið rannsóknahópa sem þegið hafa styrki frá félaginu til að taka þátt í röð fræðslufunda fyrir almenning undir heitinu „Vísindi á laugardegi - Göngum saman í leit að lækningu á brjóstakrabbameini“ sem hefst 4. febrúar og lýkur fyrir páska. Tilgangur fundanna er að draga fram hvernig grunnrannsóknir auka skilning okkar á brjóstakrabbameini og geta bætt meðhöndlun þess

Dagskrá fræðslufundanna:

Laugardaginn 4. febrúar kl. 13 tekur rannsóknahópur Jórunnar Erlu Eyfjörð á móti gestum í Læknagarði  og segir frá tengslum grunnrannsókna á brjóstakrabbameini við meðferð og horfur.

Laugardaginn 25. febrúar kl. 13 tekur rannsóknahópur Þórarins Guðjónssonar og Magnúsar Karls Magnússonar á móti gestum í Læknagarði og segja frá stofnfrumurannsóknum og brjóstakrabbameini.

Laugardaginn 17. mars kl. 13 tekur rannsóknahópur Rósu B. Barkardóttur á móti gestum í hringsalnum í Landspítalanum og segir frá rannsóknum á áhrifum erfðaefnis á brjóstakrabbamein.

Alla dagana verður byrjað á fyrirlestri og síðan verður fólki boðið í heimsókn á rannsóknastofur hópanna. Boðið verður upp á kaffi.

Nánari upplýsingar um Göngum saman og starfsemi þess er að finna á heimasíðu félagsins www.gongumsaman.is

deila á facebook