Útbreiðsla og áhrif PKD - nýrnasýki á villta laxfiskastofna á Ísland

Hvenær hefst þessi viðburður: 
3. febrúar 2012 - 12:30 to 13:10

Árni Kristmundsson fisksjúkdómafræðingur á Rannsóknastöð Háskólans í meinafræði að Keldum mun fjalla um PKD nýrnasýki í laxfiskum á Íslandi í erindi föstudaginn 3. febrúar 2012 (kl. 12:30-13:10).

Erindi Árna kallast Útbreiðsla og áhrif PKD - nýrnasýki á villta laxfiskastofna á Ísland.

PKD-nýrnasýki, sem orsakast af smásæju sníkjudýri Tetracapsuloides bryosalmonae, er alvarlegur og útbreiddur sjúkdómur í laxfiskum í Evrópu, bæði villtum og í eldi. Dæmi eru um mikil afföll í villtum laxfiskastofnum erlendis, s.s. í Sviss og Noregi. Bleikja er lítið rannsökuð m.t.t. sjúkdómsins. Smittilraunir hafa þó sýnt að hún sé mjög næm fyrir sýkinni.

PKD-nýrnasýki var óþekkt á Íslandi þar til árið 2008 er hún greindist í bleikju úr Elliðavatni. Rannsóknir síðustu 3ja ára benda til þess að sýkillinn sé útbreiddur meðal laxfiska á Íslandi. Há tíðni fiska með alvarleg einkenni sjúkdómsins hefur greinst í vötnum þar sem bleikju hefur fækkað mikið. Líklegt er að PKD-sýki valdi umtalsverðum afföllum og sé því afgerandi áhrifaþáttur í hnignun bleikjustofna þessara vatna.

Mynd af Þingvallableikju á rannsóknarstofu (Picture copyright Arnar Pálsson).

Föstudagsfyrirlestrar Líffræðistofnunar eru haldnir í stofu 130 í Öskju, náttúrufræðahúsi HÍ og eru öllum opnir. Erindin eru flutt á íslensku, nema annað sé tekið fram.

Dagskrá vorsins má nálgast á vef Líf og umhverfisvísindadeildar HÍ.

deila á facebook